Nærandi Hlé
Nærandi hlé
Nærandi hlé frá álagi dagsins. Hér staldrar þú við, endurnærist og fyllir á orkuna, og ferð út léttari á líkama og sál, glaðari og í betra jafnvægi.
Unnur Elísabet leiðir hópinn í gegnum fjölbreytta blöndu af öndunaræfingum, jógaflæði, hristingum sem losa um spennu, hugleiðslu og djúpslökun. Þú færð tækifæri til að hægja á, róa taugakerfið og endurhlaða.
Þegar líkaminn fær frelsi til að hreyfast, hrista og losa um uppsafnaða spennu verður auðveldara að sleppa takinu, anda dýpra og tengjast sjálfum sér á ný.
Um Unni Elísabetu
Unnur Elísabet skapar öruggt og lifandi rými þar sem þú getur bæði slakað á og kveikt á innri kraftinum. Hún hefur kennt jóga frá árinu 2009, þegar hún lauk námi sem Hatha- og Kundalini-jógakennari. Í kennslunni nýtir hún fjölbreyttar aðferðir, allt frá öndun, hreyfingu og dansi til hugleiðslu og mantra, til að efla tengingu, jafnvægi og gleði í daglegu lífi.
Unnur Elísabet er líka leikstjóri, danshöfundur, sviðshöfundur og leikkona. Hún hefur unnið með Íslenska dansflokknum, flestum leikhúsum landsins, RÚV og Stöð 2 og sett upp fjölda sýninga. Í tímunum tvinnar hún saman reynslu sína úr sviðslistum og jóga, þar sem líkamsvitund, sköpunarkraftur og nærandi nærvera mætast.
Það sem þátttakendur segja
„Unnur Elísabet er eins og sólin og undir hennar leiðsögn upplifði ég mikið öryggi. Ég mæli endalaust mikið með. Gleði, vöxtur og fallegar hjartaopnandi stundir.“
„Maður gleymir alveg í hvaða skapi maður kom inn, maður fer alltaf út á einhverri annarri bylgjulengd sem er svona létt og hress. Ég bara brosi þegar ég skrifa um hana.“
„Unnur tekur svo vel á móti mér, brosmild og hlý. Hún er með svo smitandi lífsgleði og allt sem hún býður upp á er gott og skemmtilegt.“
Innifalið:
Þjálfun 2x í viku
Aðgangur að tækjasal og opnum tímum á námskeiðsdögum*
Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum á námskeiðsdögum*
15% afsláttur af Blue Lagoon Skin Science vörum
15% afsláttur af meðferðum í spa
20% afsláttur af spa aðgangspökkum
*Meðlimir Hreyfingar njóta fulls aðgangs alla daga.
Er námskeiðið þegar hafið? Ef laus pláss eru á námskeiðinu er mögulegt að bætast í hópinn eftir að það hefst. Hafðu samband á [email protected] og við skoðum stöðuna með þér.
ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.