Power Ritual
Þrír tímar. Mismunandi áherslur. Ein sterk heild.
Power Ritual er námskeið sem sameinar það besta úr styrktarþjálfun, þolþjálfun, Pilates, Barre, mobility og endurheimt. Vikan byrjar á kröftugri styrktarþjálfun, um miðja viku tekur við mýkri og markvissari hreyfing og í lok vikunnar sameinum við kraft og endurheimt – keyrum upp púlsinn, teygjum og losum um spennu.
💪 Mánudagur - styrkur:
Þungar og krefjandi styrktaræfingar í infrarauðum hita. Áhersla á að byggja upp styrk, vöðvamassa og getu til að takast á við aukið álag.
🧘 Miðvikudagur - flæði:
Mýkri tími með áherslu á Pilates, Barre, djúpvöðva, hreyfanleika, liðleika og öndun. Markviss hreyfing sem skapar jafnvægi á móti styrktarvinnunni.
⚡Föstudagur - kraftur og endurheimt:
Kraftmikil þjálfun sem hækkar púlsinn og reynir á úthaldið, áður en við endum vikuna á markvissri endurheimt með teygjum, nuddboltum og FoamFlex.
Af hverju Power Ritual?
Markmiðið er einfalt - að byggja upp styrk, auka úthald og hreyfanleika ásamt því að styðja við góða líðan og endurheimt. Ólíkar áherslur tímanna vinna saman og skapa gott jafnvægi milli krefjandi þjálfunar, markvissrar hreyfingar og endurheimtar.
Fyrir hverja er Power Ritual?
Power Ritual hentar þeim sem vilja fjölbreytta og markvissa þjálfun þar sem styrkur, þol, hreyfanleiki og endurheimt fá öll sitt pláss. Æfingarnar bjóða upp á mismunandi erfiðleikastig svo hver og einn getur unnið út frá sinni getu – hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin/n.
Innifalið:
- Þjálfun 3x í viku
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Aðgangur að tækjasal og opnum tímum á námskeiðsdögum*
- Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum á námskeiðsdögum*
- 15% afsláttur af Blue Lagoon Skin Science vörum
- 15% afsláttur af meðferðum í spa
- 20% afsláttur af spa aðgangspökkum
*Meðlimir Hreyfingar njóta fulls aðgangs alla daga.
ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.