Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Power Ritual Duo

31. ágúst
6 vikur
26.900 kr.
38.900 kr. Aðgangur að Hreyfingu á námskeiðsdögum
Netgíró

Tveir tímar. Tvær áherslur. Eitt öflugt Duo.
Power Ritual Duo sameinar kröftuga styrktarþjálfun, þol og markvissa endurheimt. Vikan byrjar á þungri styrktarvinnu í Infra heitum sal og endar á kraftmikilli þjálfun þar sem púlsinn fer upp áður en við hægjum á og gefum líkamanum tíma til að teygja, losa um spennu og jafna sig.

💪 Mánudagur – styrkur:
Þungar og krefjandi styrktaræfingar í Infra heitum sal. Áhersla á að byggja upp styrk, vöðvamassa og getu til að takast á við aukið álag.

⚡ Föstudagur – kraftur og endurheimt:
Kraftmikil þjálfun sem hækkar púlsinn og reynir á úthaldið, áður en við endum vikuna á markvissri endurheimt með teygjum, nuddboltum og FoamFlex.

Af hverju Power Ritual?
Markmiðið er að byggja upp styrk og úthald ásamt því að gefa endurheimtinni sitt pláss. Tímarnir tveir hafa ólíkar áherslur sem vinna vel saman – annars vegar þung og markviss styrktarvinna og hins vegar kraftur, úthald og endurheimt.

Fyrir hverja er Power Ritual?
Power Ritual hentar þeim sem vilja markvissa og fjölbreytta þjálfun tvisvar í viku, með áherslu á styrk, kraft, úthald og góða endurheimt. Æfingarnar bjóða upp á mismunandi erfiðleikastig svo hver og einn getur unnið út frá sinni getu – hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin/n.

Innifalið:

  • Þjálfun 2x í viku
  • Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
  • Aðgangur að tækjasal og opnum tímum á námskeiðsdögum*
  • Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum á námskeiðsdögum* 
  • 15% afsláttur af Blue Lagoon Skin Science vörum
  • 15% afsláttur af meðferðum í spa
  • 20% afsláttur af spa aðgangspökkum

*Meðlimir Hreyfingar njóta fulls aðgangs alla daga. 

ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.

PR2

mánudagur
kl. 09:15-10:05
Salur 1
föstudagur
kl. 09:15-10:05
Salur 1
Tímabil : 31 ágúst til 9 október
Skrá á námskeið

MyZone Switch

24.990 kr.

Manduka Jógahandklæði - Grátt

Frá 11.990 kr.