Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Stirðir en sterkir

1. september
6 vikur
23.900 kr.
36.900 kr. Aðgangur að Hreyfingu á námskeiðsdögum
Netgíró

Ertu orðinn þreyttur á stífleika og verkjum? 💪
Stirðir en sterkir er markviss blanda af liðleika-, hreyfiteygju- og styrktaræfingum sem hjálpa þér að losa um stífleika, bæta hreyfigetu og byggja upp styrk. Fyrir karla sem vilja líða betur í líkamanum, hreyfa sig frjálsar og styðja við góða líkamsbeitingu í daglegu lífi og þjálfun.

Af hverju Stirðir en sterkir?
Góður liðleiki og hreyfigeta skipta miklu máli fyrir alhliða líkamsástand og geta stutt við betri líkamsbeitingu og dregið úr líkum á álagsmeiðslum. Í þjálfuninni er unnið markvisst með styrk, liðleika og hreyfiteygjur til að losa um stíf svæði, auka hreyfiferla og bæta jafnvægi og stjórn líkamans. Áhersla er á æfingar sem nýtast bæði í daglegu lífi og annarri þjálfun.

Fyrir hverja er Stirðir en sterkir?
Sérstaklega hannað fyrir karla sem vilja auka styrk og liðleika, bæta hreyfigetu og vinna gegn stífleika. Hentar ólíkum getustigum og æfingar eru aðlagaðar að hverjum og einum.

Hvað segja námskeiðsþátttakendur um Stirðir en sterkir?
"Mjög gott námskeið, ákkúrat það sem mig vantaði. Líður eins og líkaminn sé að vakna úr hálfgerðum dvala og nú er hann tilbúinn í meiri átök." og "Akkúrat það sem mig vantaði, blanda af styrkjandi æfingum og teygjum. Ég finn stóran mun á líðan í skrokknum eftir 3 mánuði."  

-Ánægðir námskeiðsþátttakendur

Innifalið:
  • Þjálfun 2x í viku
  • Boditrax – aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
  • Aðgangur að tækjasal og opnum tímum á námskeiðsdögum*
  • Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum á námskeiðsdögum* 
  • 15% afsláttur af Blue Lagoon Skin Science vörum
  • 15% afsláttur af meðferðum í spa
  • 20% afsláttur af spa aðgangspökkum

*Meðlimir Hreyfingar njóta fulls aðgangs alla daga. 

ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.

STS1

þriðjudagur
kl. 07:20-08:10
Salur 5
fimmtudagur
kl. 07:20-08:10
SkillX
Tímabil : 1 september til 8 október
Skrá á námskeið