Hydration Ritual - Gjafasett
Gefðu húðinni þá umhyggju sem hún á skilið á köldustu mánuðum ársins. Þetta takmarkaða sett inniheldur okkar helstu rakagjafa ásamt fallegum aukahlutum fyrir dekurstundir vetrarins.
Formúlurnar byggja á lífvirkum innihaldsefnum Bláa Lónsins og yfir 30 ára húðrannsóknum.
(16.600 kr VIRÐI)
Ítarlegri upplýsingar um vöru
INNIHELDUR:
Mineral Mask
Rakagefandi andlitsmaski sem inniheldur lífvirkan og steinefnaríkan jarðsjó Bláa Lónsins. Léttur gelmaski sem veitir húðinni öflugan raka og gerir húðina mýkri og ljómandi.
Lip Balm
Næringarríkur varasalvi sem verndar og mýkir varirnar samstundis auk þess að innsigla raka. Varirnar fá fyllri og sléttari ásýnd.
Maskalykill
Lykillinn að því að kreista hvern einasta dropa úr áltúbum okkar. Rennið þessum snúningslykli á áltúbuna og snúið þar til hann hjálpar við að ná vörunni út auðveldlega.
Blá snyrtitaska
Falleg snyrtitaska sem hönnuð er til að geyma þínar helstu húðvörur, heima eða á ferðalagi.