Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Kynningartími - Hjól BEAT


🚴‍♀️🔥 HJÓL BEAT – KYNNINGARTÍMI!

Nýr hjólatími er að líta dagsins ljós í Hreyfingu og við ætlum að kynna hann með stæl! 🔥

Hjól Beat er ekki bara hjólatími - þetta er upplifun! Hér mætast hjólreiðar, geggjuð tónlist og algjör partýstemning í boði okkar allra bestu Nadiu og Halldóru. Við hjólum í takt við tónlistina og látum taktinn og orkuna í salnum leiða okkur áfram! Lagalistinn er í aðalhlutverki, stemningin magnast með hverju lagi og áður en þú veist af ertu farin að svitna, brosa og skemmta þér konunglega!

Við tökum spretti, klifrum brekkur og látum taktinn leiða okkur áfram. Þetta er tíminn þar sem þú getur gleymt öllu öðru, sleppt þér í tónlistinni og einfaldlega notið þess að hreyfa þig.

Hjól Beat er fyrir alla! Þú þarft alls ekki að vera vanur hjólari til að vera með. Þú stjórnar sjálf/ur álaginu og finnur þinn takt, hvort sem þú ert að stíga á hjól í fyrsta skipti eða hefur mætt í ótal hjólatíma.

Tilfinningin eftir tímann? Endorfínið á fullu, gleði, bros á vör og geggjuð orka fyrir restina af deginum! ✨

🎶 Taktu vinkonu eða vin með, tryggðu þér hjól og komdu að upplifa nýja Hjól Beat stemningu með okkur!

Góð tónlist. Mikill sviti. Geggjuð stemning! 🔥

Finndu þinn tíma

Salur
4
laugardagur 17. okt.
10:30 - 11:20
Salur
4
fimmtudagur 22. okt.
20:00 - 20:50