Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Kynningartími - Power Pilates með Helgu Lind 🔥

Power Pilates – Kynningartími með Helgu Lind 🔥

Styrkur, stjórn og flæði í Infra heitum sal!

Komdu og prófaðu tíma í okkar vinsæla námskeiði, Power Pilates með Helgu Lind! Í þessum kraftmikla og fjölbreytta tíma sameinum við Pilates, barre og markvissar styrktaræfingar þar sem unnið er með allan líkamann, með sérstaka áherslu á djúpvöðva, stöðugleika og líkamsvitund.

Power Pilates byggir á grunni Pilates en bætir við kraftmiklum barre- og styrktaræfingum sem gera þjálfunina bæði krefjandi og skemmtilega. Áhersla er lögð á að styrkja djúpvöðva kviðar, baks og grindarbotns, bæta líkamsstöðu og auka liðleika. Við vinnum með markvissa öndun, góða líkamsbeitingu og flæði í hreyfingum sem hjálpar okkur að byggja upp sterkan og vel þjálfaðan líkama.

Kynningartíminn er opinn öllum, líka þeim sem eru ekki meðlimir í Hreyfingu, og hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Æfingarnar eru kenndar með mismunandi erfiðleikastigum svo hver og einn geti unnið út frá sinni getu og fengið góða og árangursríka þjálfun.

Þetta er frábært tækifæri til að kynnast Power Pilates, upplifa einstaka stemningu í Infra heitum sal og finna hvað þessi fjölbreytta þjálfun hefur upp á að bjóða.