Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Opinn kynningartími - Infra Barre með Berglindi 🔥

Infra Barre með Berglindi 🔥

Ertu til í góðan Barre bruna í Infra heitum sal?

Berglind ætlar að bjóða upp á kraftmikinn og skemmtilegan Infra Barre tíma þar sem við ætlum að svitna, styrkja allan líkamann og njóta þess að hreyfa okkur í 30° innrauðum hita!

Við vinnum bæði við Barre stöngina og á gólfi með eigin líkamsþyngd og fjölbreyttum áhöldum. Áherslan er á styrk, stöðugleika og vöðvaþol og auðvitað þennan einstaka Barre bruna sem við þekkjum svo vel! 💪

Berglind er kraftmikill þjálfari með frábæra orku og kann svo sannarlega að skapa góða stemningu í salnum!

Tíminn er opinn öllum, hvort sem þú ert vanur Barre eða langar að prófa eitthvað nýtt. Þú þarft ekki að vera meðlimur í Hreyfingu þannig ef þig langar að koma að prófa eða vilt bjóða vinkonu með þá eru allir velkomnir að koma og vera með <3

ATH. Nauðsynlegt er að mæta með stórt handklæði eða eigin jógadýnu.