Pop up - Power Sculpt með Söru Snædísi 💪✨
Kynningartími, opinn öllum, á splunkunýju námskeiði sem hefst 15. september.
Styrkur, flæði og sculpt fyrir allan líkamann ✨
Power Sculpt er glænýtt námskeið hannað af Söru Snædísi sem sameinar Barre, Pilates, styrk og yoga í Infra heitum sal. Unnið er markvisst að því að styrkja líkamann á fjölbreyttan hátt með skemmtilegum æfingum, góðri tónlist og stemningu.
Kennt er tvisvar í viku og hafa tímarnir ólíkar áherslur. Við nýtum eigin líkamsþyngd en notumst einnig við lóð, teygjur og Pilates bolta til að skapa fjölbreytt álag.
💪 Þriðjudagar:
Áhersla á djúpvöðvaæfingar, Pilates og styrk.
🩰 Fimmtudagar:
Áhersla á skemmtilegar og áhrifaríkar Barre æfingar við stöngina.
Af hverju Power Sculpt?
Markmiðið er fyrst og fremst að byggja upp styrk og hafa gaman á æfingu. Við aukum álagið í hverri viku þannig að árangur náist á skömmum tíma. Ef þig langar í skemmtilega og árangursríka þjálfun er þetta námskeið svo sannarlega fyrir þig.
Fyrir hverja er Power Sculpt?
Power Sculpt hentar öllum og æfingarnar bjóða upp á mismunandi erfiðleikastig svo hver og einn getur unnið út frá sinni getu, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin/n.
Gott að hafa í huga:
Nauðsynlegt er að koma með stórt handklæði eða yoga handklæði á dýnu eða eigin dýnu. Mælt er með því að vera á tánum í tímunum eða í gripsokkum.
ATH. Það geta allir mætt í þennan kynningartíma, bæði meðlimir og fólk utan stöðvar.