Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

FORA Connect 21 CGM blóðsykursmælir

Til baka í vefverslun

Fáðu betri innsýn í líkamsstarfsemi þína

Ertu forvitin/n um hvernig glúkósagildin þín breytast yfir daginn? Glúkósi er sykurinn sem líkaminn notar sem orku. Hann kemur úr matnum og berst með blóðinu til vöðva, heila og annarra líffæra.

FORA Connect 21 sýnir þér tengsl máltíða, hreyfingar og glúkósa og hjálpar þér að sjá mynstur í þinni daglegu rútínu. Lítill skynjari á upphandlegg fylgist með gildunum í allt að 21 dag og birtir þau sjálfkrafa í appi í símanum þínum. 

Þrjár vikur af innsýn:

  • Sjáðu tengsl við máltíðir.
    Fylgstu með hvernig gildin breytast eftir ólíkar máltíðir.
  • Skoðaðu hreyfinguna í samhengi.
    Hvernig líta gildin út á æfingadögum eða eftir göngutúr?
  • Finndu mynstur yfir tíma.
    Berðu saman daga og taktu eftir því sem endurtekur sig.

Fyrir hvern? Fyrir alla sem vilja skilja betur hvernig daglegt líf hefur áhrif á líkamann. Þú færð tækifæri til að skoða eigin venjur af forvitni og kynnast viðbrögðum líkamans betur. FORA Connect 21 er ekki ætlaður til að greina eða meðhöndla sjúkdóma.

Einn skynjari – dugar í allt að 21 dag. 

14.990 kr.
FORA Connect 21 CGM blóðsykursmælir
FORA Connect 21 CGM blóðsykursmælir FORA Connect 21 CGM blóðsykursmælir FORA Connect 21 CGM blóðsykursmælir FORA Connect 21 CGM blóðsykursmælir FORA Connect 21 CGM blóðsykursmælir

Ítarlegri upplýsingar um vöru

Innsýn, ekki einkunn

Það er eðlilegt að glúkósi hækki eftir mat og lækki svo aftur. Ein hækkun segir lítið um heilsuna. Markmiðið er að kynnast þínum mynstrum, með áherslu á jafnvægi en ekki öfgar.

Hreyfing sem þú sérð

Vöðvarnir nota glúkósa sem orku þegar þeir vinna. Þess vegna sést hreyfing oft vel á mælinum, hvort sem það er styrktaræfing, hóptími eða stutt ganga eftir mat. Lítil skref geta skipt miklu máli.

Helstu kostir

  • Einn skynjari dugar í allt að 21 dag
  • Ný gildi í símann á 5 mínútna fresti
  • Engar fingurstungur
  • Þolir sturtu, sund og æfingar
  • Instara-appið fyrir iPhone og Android

Mikilvægt við notkun

  • Skynjarinn er settur aftan á upphandlegginn.
  • Fyrstu gildin birtast eftir um 15 mínútur. Fyrsta sólarhringinn geta þau sveiflast meira á meðan skynjarinn aðlagast líkamanum.
  • Haltu svæðinu þurru fyrsta sólarhringinn.
  • Ef gildi koma á óvart eða þér líður illa, leitaðu ráða hjá heilsugæslunni.
  • Lestu notkunarleiðbeiningarnar vel fyrir fyrstu notkun.

Hvernig lesa á úr mælingum?

Horfðu á mynstur, ekki stakar tölur
Ein há eða lág mæling segir lítið. Það sem skiptir máli er hvað endurtekur sig yfir daga og vikur.

Skoðaðu heildarmyndina
Glúkósinn hækkar eftir mat og það er eðlilegt. Áhugaverðara er hversu hratt hann fer aftur niður. Hjá flestum jafnar hann sig innan tveggja til þriggja klukkustunda.

Samsetning máltíða skiptir máli
Sami matur getur haft ólík áhrif eftir því með hverju hann er borðaður. Prótein, trefjar og fita með kolvetnum hægja yfirleitt á hækkuninni.

Hreyfing hefur áhrif, en ekki alltaf eins
Ganga eða létt hreyfing eftir mat lækkar glúkósann oft hratt. Mjög erfið æfing getur hins vegar hækkað hann tímabundið, því líkaminn losar orku til að mæta álaginu. Það er eðlilegt.

Svefn og streita skipta líka máli
Eftir slæma nótt eða á stressandi degi getur glúkósinn verið hærri en venjulega, jafnvel þótt þú borðir það sama.

Prófaðu eitt í einu
Ef þú vilt sjá hvað breytir hverju, breyttu þá einum hlut í einu. Dæmi: farðu í 10 mínútna göngu eftir kvöldmat í nokkra daga og berðu saman.

Skráðu hjá þér
Skráðu máltíðir, æfingar og svefn í appið. Þá er auðveldara að tengja mælingarnar við daglegt líf.

Ekki láta tölurnar stjórna þér
Markmiðið er að kynnast líkamanum, ekki að forðast allar hækkanir. Fjölbreyttur matur, regluleg hreyfing og góður svefn skipta mestu, ekki fullkomin lína.


Algengar spurningar

Hvernig virkar skynjarinn?
Hann mælir glúkósa í vökvanum undir húðinni og sendir gildin sjálfkrafa í símann. Þú sérð bæði stöðuna hverju sinni og hvernig hún breytist yfir daginn. Þar sem mælt er undir húðinni en ekki í blóði geta gildin verið nokkrum mínútum á eftir.

Hvar set ég skynjarann á?
Aftan á upphandlegginn, á hreina og þurra húð án krems eða olíu. Forðastu staði þar sem föt eða töskuólar nuddast við hann, eða þar sem þú liggur mikið. Veldu líka svæði án öra, marbletta eða ertingar. Gott ráð er að setja hann á að kvöldi svo límið nái að festast vel yfir nóttina.

Má ég æfa, fara í sturtu og sund?
Já, um leið og fyrsti sólarhringurinn er liðinn. Ef þú syndir eða svitnar mikið er gott að setja vatnsheldan plástur yfir skynjarann.

Hvaða app þarf ég?
Instara-appið, sem er til fyrir iPhone og Android. Athugaðu hvort síminn þinn styður appið áður en þú kaupir.

Hvað ef gildi kemur mér á óvart?
Stök mæling getur verið ónákvæm, til dæmis ef þrýstingur er á skynjaranum. Ef óvenju há eða lág gildi endurtaka sig, eða þér líður illa, skaltu leita ráða hjá heilsugæslunni.

Er skynjarinn fyrir fólk með sykursýki?
Hann er hugsaður fyrir þá sem vilja kynnast líkamanum betur, ekki til að greina eða meðhöndla sjúkdóma. Ef þú ert með sykursýki skaltu ræða við lækninn þinn um hvaða mælir hentar þér.

Framleiðandi: ForaCare. CE-merkt.