Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Sumar í Hreyfingu

Til baka í vefverslun

Leyfðu þér betri Hreyfingu í sumar

Tryggðu þér aðild til 31. ágúst í Hreyfingu — Grunnaðild eða Heilsuaðild. ATH! Takmarkað framboð plássa. 

Nýttu sumarið til að hlúa að heilsunni, byggja upp styrk, auka vellíðan og fylla á orkuna. Í Hreyfingu færðu umhverfi, hvatningu og faglega þjónustu sem hjálpar þér að setja þig í forgang.

Heilsuaðild - aukin þjónusta, spa og stuðningur

Heilsuaðild hentar nýjum meðlimum og þeim sem eru í Grunnaðild en vilja njóta aukinnar þjónustu yfir sumarið. Þar er meðal annars innifalin heildræn líkamsástandsmæling með þjálfara, ráðgjöf um markmiðasetningu, stöðluð æfingaprógrömm í appi og fullur aðgangur að Hreyfing spa í allt sumar. Nánari upplýsingar má finna hér fyrir neðan.

  • Sumar í Heilsuaðild: 74.900 kr.
  • Sumar í Heilsuaðild (f/meðlimi Grunnaðildar): 34.900 kr.
  • Stakur mánuður í Heilsuaðild: 27.990 (fullt verð 38.990 kr.)

Grunnaðild - heilsurækt og hóptímar

Grunnaðild veitir aðgang að heilsuræktinni, öllum hóptímum og útispa — á sérstökum sumarkjörum.

  • Sumar í Hreyfingu (Grunnaðild): 54.900
  • Stakur mánuður í Grunnaðild: 19.900 (fullt verð 27.490 kr.)

 

Með öllum kaupum á Sumar í Heilsuaðild og Sumar í Grunnaðild fylgir sumarkaupauki.

Kaupauki:

  • Vönduð íþróttataska - í heilsuræktina, sundið og ferðalagið ☀️
  • Hreyfingar vatnsflaska - tilvalin á æfinguna og daglega notkun💧
  • Par af Hreyfingar sokkum - frábærir í átökin 🏃

Kortið verður virkt við kaup. 
Mánaðarkort gilda í 30 daga frá kaupum og Sumar í Grunnaðild og Sumar í Hreyfingu gilda til og með 31/8/26.

 

Sumar í Hreyfingu
Sumar í Hreyfingu Sumar í Hreyfingu Sumar í Hreyfingu Sumar í Hreyfingu Sumar í Hreyfingu Sumar í Hreyfingu

Ítarlegri upplýsingar um vöru

Grunnaðild:

Grunnaðild veitir aðgang að heilsurækt, yfir 100 opnum hóptímum vikulega, boditrax líkamsástandsmælingar, útispa með blaut- og þurrgufu ásamt heitum og köldum pottum.

 

Heilsuaðild:

Heilsuaðild veitir aukið þjónustustig með persónulegum stuðningi og markvissri eftirfylgni.

Meðlimir njóta m.a. aðgengis að þjálfara, smærri og sértækari æfingahópum ásamt einstaklingsmiðaðri æfingaáætlun. Að auki fylgja fríðindi eins og baðhandklæði við hverja komu og ótakmarkaður aðgangur að Hreyfing Spa.

Heilsuaðildarmeðlimir hafa aðgang að eftirfarandi:

    • SkillX tímar 

    • Forskráning í alla hóptíma

    • Aðgangur að heilsurækt, öllum opnum hóptímum og útispa með heitum pottum og gufuböðum.

    • Aðgangur að spa, sloppur og handklæði

    • Baðhandklæði í hverri heimsókn

    • Stöðluð æfingaprógrömm og stuðningur í gegnum Hreyfingar appið
    • Sérstök hóptímadagskrá í tækjasal eingöngu fyrir Heilsuaðild, undir leiðsögn þjálfara í smærri hópum með áherslu á að byggja upp styrk, bæta tækni og efla öryggi í æfingum

    • Líkamsástandsmæling með þjálfara sem inniheldur m.a. líkamssamsetningu, styrktar- og þrekpróf í Technogym Checkup ásamt viðtali og markmiðasetningu

    • 15% afsláttur af snyrti-, nudd- og spameðferðum (Gildir ekki af gjafabréfum)

    • 15% afsláttur af Blue Lagoon vörum