Hot Method
Öflug heit þjálfun fyrir styrk, liðleika og úthald 🔥✨
Kraftmiklar styrktaræfingar, Pilates- og Barre innblásnar hreyfingar í bland við mjúkt flæði í heitu umhverfi sem miða að því að auka styrk, liðleika og orku.
Af hverju Hot Method?
Fjölbreytt og árangursrík þjálfun í 30° heitum sal sem sameinar öflugt styrktarflæði með Pilates- og Barre innblásnum hreyfingum. Æfingar með eigin líkamsþyngd, handlóðum, teygjum og boltum miða að því að virkja djúpvöðva, bæta úthald, liðleika og líkamsstöðu. Gott jafnvægi milli styrks, flæðis og vellíðunar.
Fyrir hverja er Hot Method?
Námskeiðið er fyrir bæði byrjendur og lengra komna þar sem æfingar eru auðvelt að laga að getu hvers og eins. Fullkomið fyrir þá sem elska Pilates og Barre tíma og vilja taka þjálfunina á næsta stig.
Hvað segja námskeiðsþátttakendur um þjálfarann?
"Matthildur María er umhyggjusöm, hvetjandi og einnig ákveðin. Gott utanumhald og eftirfylgni. Mæli með ef þú vilt komast í gang." og "Matthildur alltaf jafn peppandi og með ótrúlega skemmtilegar æfingar. Finn ótrúlega mikinn mun á styrki og þoli síðan ég byrjaði á námskeiðinu!".
-Ánægðir námskeiðsþátttakendur
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku í 30° heitum sal
- Hvetjandi póstar frá þjálfara
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útiaðstöðu - jarðsjávarpotti og gufuböðum