Hreyfing og Vellíðan
Sterkari líkami, betra jafnvægi og bætt líðan 🌿
Hreyfing & vellíðan er vandað og uppbyggilegt námskeið hannað af sjúkraþjálfara fyrir þá sem vilja styrkja líkamann á öruggan og markvissan hátt. Unnið er með styrk, jafnvægi, hreyfigetu og þol með það að markmiði að bæta líkamslíðan, auka orku og gera daglegar hreyfingar auðveldari.
Af hverju Hreyfing & vellíðan?
Áhersla er lögð á styrk, líkamsstöðu, liðleika, hreyfigetu, þol og jafnvægi – allt þættir sem styðja við betri heilsu, aukið öryggi í hreyfingu og meiri vellíðan í daglegu lífi. Æfingarnar eru fjölbreyttar og aðlagaðar þörfum hópsins.
Fyrir hverja er Hreyfing & vellíðan?
Námskeiðið hentar sérstaklega þeim sem eru að hefja þjálfun á ný, vilja byggja sig upp á öruggan hátt eða kjósa hóflegt og markvisst álag. Það hentar einnig vel fólki með lítinn æfingabakgrunn eða stoðkerfisvandamál og þeim sem vilja viðhalda styrk og hreyfigetu með hækkandi aldri.
Hvað segja námskeiðsþátttakendur um Hreyfingu & vellíðan?
"Sandra kann sitt fag og sinnir þáttakendum eins og best er hægt að hugsa sér. Fylgist vel með að æfingar séu rétt gerðar og okkur fyrir bestu. Hún hefur lag á að gera æfingarnar á fjölbreyttan hátt og að halda áfram án þess að slóra; enginn tími til að láta sér leiðast!" og "Todda hefur yfirburði þegar kemur að þjálfun, „peppi“ og drifkrafti. Hún er áhugasöm, athugul og nær einstakri stemmningu í þjálfuninni og fær fólk til að hrífast með"
-Ánægðir námskeiðsþátttakendur
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku hjá sjúkraþjálfara og íþróttafræðing
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útiaðstöðu með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum
ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.