Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Infra Styrkur & Trigger Point

31. ágúst
8 vikur
32.900 kr.
50.900 kr. Aðgangur að Hreyfingu á námskeiðsdögum
Netgíró

Viltu styrkja líkamann, auka hreyfigetu og minnka stífleika? 🔥
Infra styrkur & Trigger Point sameinar styrktaræfingar og djúpa vöðvaslökun í innrauðum hita. Þjálfun sem bætir hreyfigetu, liðleika og vellíðan ásamt því að draga úr bólgum og getur minnkað langvarandi verki.

Af hverju Infra Styrkur og Trigger Point?
Markviss þjálfun í 28–32° innrauðum hita sem eykur styrk, hreyfigetu og líkamsvitund. Æfingar með lóðum, teygjum og eigin líkamsþyngd eru sameinaðar trigger point tækni með nuddrúllum og boltum sem losar um spennu, dregur úr verkjum og bætir liðleika. Uppbyggjandi og djúpverkandi námskeið sem stuðlar að meiri vellíðan og betri hreyfingu.

Fyrir hverja er Infra Styrkur & Trigger Point?
Hentar öllum sem vilja byggja upp styrk á öruggan hátt, draga úr stífleika og bæta daglega líkamsbeitingu, hreyfingu og líðan. 

Hvað segja námskeiðsþátttakendur um Infra Styrk & Trigger Point?
"Besta námskeið sem ég hef farið á fyrr og síðar! Guðný er bara best! Hún veit hvað hún er að gera og tímarnir mynda góða heild. Ég sef eins og ungbarn eftir æfingar.”

-Ánægður námskeiðsþátttakandi


Innifalið:

  • Þjálfun 2x í viku
  • Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
  • Aðgangur að tækjasal og opnum tímum á námskeiðsdögum*
  • Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum á námskeiðsdögum* 
  • 15% afsláttur af Blue Lagoon Skin Science vörum
  • 15% afsláttur af meðferðum í spa
  • 20% afsláttur af spa aðgangspökkum

*Meðlimir Hreyfingar njóta fulls aðgangs alla daga. 

ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.

ST1

mánudagur
kl. 18:30-19:30
Salur 1
miðvikudagur
kl. 18:30-19:30
Salur 1
Tímabil : 31 ágúst til 21 október
Skrá á námskeið

Hreyfing - Jógahandklæði

6.990 kr.

Nuddrúllur

Frá 3.990 kr.

Nuddboltar litlir

5.990 kr.