Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Karlaþjálfun

5. janúar
8 vikur
37.900 kr. 4.738 kr. á viku
79.900 kr. 9.988 kr. á viku
Netgíró

Viltu efla styrk, úthald og liðleika í góðum hópi? 💪
Karlaþjálfun sameinar kraftmikla styrktar- og þrekþjálfun við djúpvöðvaæfingar og liðleika. Uppbyggjandi og skemmtileg þjálfun sem styrkir bæði líkama og huga — fyrir karla á öllum aldri.

Af hverju Karlaþjálfun?
Fjölbreytt og markviss blanda af styrktar-, þrek- og liðleikaæfingum fyrir karlmenn á öllum aldri. Notast er við handlóð, stangir, nuddrúllur og fleira. Þjálfunin sameinar kraftbyggjandi styrktaræfingar, úthaldslotur og liðleikaþjálfun, þar á meðal heitan tíma með djúpvöðvaæfingum og hreyfiteygjum. 

Fyrir hverja er Karlaþjálfun?
Fyrir karlmenn á öllum aldri sem vilja skothelt, heildrænt æfingakerfi og vilja bæta líkamsástand, hreyfigetu og vellíðan í góðum félagsskap.

Hvað segja námskeiðsþátttakendur um Karlaþjálfun?
"Einstakur þjálfari, vakandi fyrir ólíkum þörfum hópsins og flottar einstaklingsmiðaðar lausnir. Námskeiðið skilaði árangri, aukin vöðvamassi og minkandi fita. Er með axlarvandamál er þjálfari tók mikið tillit til og var tilbúinn með sér æfingar fyrir mig er á þurfti að halda." 

-Ánægður námskeiðsþátttakandi

 

Innifalið:

ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.

KA1

mánudagur
kl. 12:05-12:55
Salur 5
miðvikudagur
kl. 12:05-12:55
Salur 2
Skrá á námskeið