Karlaþjálfun

Fjölbreytt og markviss blanda af styrktar-, þrek- og liðleikaæfingum fyrir karlmenn á öllum aldri. Þjálfunin sameinar kraftbyggjandi styrktaræfingar, úthaldslotur og liðleikaþjálfun, þar á meðal heitan tíma með djúpvöðvaæfingum og hreyfiteygjum. Skothelt æfingakerfi fyrir þá sem vilja bæta líkamsástand, hreyfigetu og vellíðan í góðum félagsskap.
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum.
Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.
„Námskeiðið skilaði árangri, aukin vöðvamassi og minkandi fita. Er með axlarvandamál er þjálfari tók mikið tillit til og var tilbúinn með sér æfingar fyrir mig er á þurfti að halda.“