Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Kraftur og úthald

2. júní
4 vikur
18.900 kr. 4.725 kr. á viku
39.900 kr. 9.975 kr. á viku
Netgíró

Viltu byggja upp styrk, hraða og sprengikraft? ⚡️
Kraftur og úthald er öflugt og fjölbreytt námskeið sem sameinar styrk, snerpu og úthald í krefjandi og skemmtilegri þjálfun. Markmiðið er að auka alhliða líkamlegan styrk á sama tíma og unnið er að meiri hraða, sprengikrafti og bættu þoli.

Af hverju Kraftur og úthald?
Öflug og fjölbreytt þjálfun sem sameinar styrk, hlaup og lotuæfingar (e. interval) til að bæta þol, hraða og sprengikraft. Áhersla er lögð á hlaup og intervalþjálfun á Technogym hlaupabrettum ásamt markvissri styrktarþjálfun sem eykur afkastagetu og styrkir allan líkamann. Fjölbreyttar æfingar, góð leiðsögn og skemmtilegar áskoranir hjálpa þér að ná stöðugum framförum.

Fyrir hverja er Kraftur og úthald?
Hentar þeim sem vilja bæði byggja upp styrk og bæta þol í fjölbreyttri þjálfun. Námskeiðið sameinar ávinning styrktarþjálfunar fyrir vöðva, stoðkerfi og líkamsbeitingu við áhrif þolþjálfunar á hjarta- og æðakerfi, úthald og almenna heilsu. Æfingarnar eru skalaðar eftir getu hvers og eins og því hentar námskeiðið bæði þeim sem vilja meiri fjölbreytni í þjálfun og þeim sem stefna að aukinni afkastagetu og betri líkamlegri líðan.

Hvað segja meðlimir um þjálfarana?
"Ég vil hrósa Viðari Gauta fyrir frábæra þjálfun og hvatningu. Hann er fyrirmyndarþjálfari sem fleiri ættu að taka sér til fyrirmyndar, aðstoðar og leiðbeinir vel og er annt um fólkið sem hann þjálfar.” og “Todda er ekki bara góður þjálfari heldur skín í gegn hvað hún hefur hagsmuni hvers og eins kúnna að leiðarljósi. Hún er áhugasöm, athugul og nær einstakri stemmningu í þjálfuninni og fær fólk til að hrífast með.”

-Ánægðir meðlimir

 

Innifalið:

ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.

KU1

þriðjudagur
kl. 07:15-08:15
Salur 3
fimmtudagur
kl. 07:15-08:15
Salur 2
Tímabil : 2 júní til 25 júní
Skrá á námskeið