Pilates & Barre

Endurnærandi Pilates og Barre í hlýjum sal (28°) sem miðar að því að styrkja líkamann, bæta líkamsstöðu og auka liðleika. Með markvissri öndun, réttri líkamsbeitingu og stjórnuðum hreyfingum gefst tækifæri á dýpri vöðvavinnu og betra jafnvægi milli styrks og liðleika. Hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum sem vilja losa um streitu og bæta heilsu á mildu en krefjandi æfingakerfi.
*Í þessum tíma eru þátttakendur ekki í skóm. Einnig er nauðsynlegt að mæta með jóga handklæði, stórt handklæði eða eigin dýnu.
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku hlýjum sal (28°)
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum.
Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.