Power Sculpt
Styrkur, flæði og sculpt fyrir allan líkamann ✨
Power Sculpt er styrktar- og hreyfinámskeið sem sameinar Barre, Pilates, styrk og yoga. Með nákvæmum og meðvituðum hreyfingum vinnum við með allan líkamann, byggjum upp styrk og úthald og bætum stöðugleika og líkamsvitund.
Tímarnir hafa ólíkar áherslur, annars vegar kraftmikla vinnu við Barre-stöngina og hins vegar vinnu á dýnu þar sem styrkur og flæði mætast. Við nýtum létt lóð, teygjur, Pilates-bolta og eigin líkamsþyngd til að skapa fjölbreytt álag og styrkja líkamann á fjölbreyttan hátt.
Af hverju Power Sculpt?
Markmiðið er að byggja upp styrk og úthald, bæta líkamsvitund og öðlast meira öryggi í hreyfingu. Yfir vikurnar byggjum við jafnt og þétt ofan á æfingarnar og aukum áskorunina eftir því sem líður á námskeiðið. Ólíkar áherslur tímanna skapa krefjandi og vel uppbyggða heild.
Fyrir hverja er Power Sculpt?
Power Sculpt hentar þeim sem vilja styrkjast með fjölbreyttri þjálfun þar sem styrkur og flæði fara saman. Æfingarnar bjóða upp á mismunandi erfiðleikastig svo hver og einn getur unnið út frá sinni getu, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin/n.
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Aðgangur að tækjasal og opnum tímum á námskeiðsdögum*
- Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum á námskeiðsdögum*
- 15% afsláttur af Blue Lagoon Skin Science vörum
- 15% afsláttur af meðferðum í spa
- 20% afsláttur af spa aðgangspökkum
*Meðlimir Hreyfingar njóta fulls aðgangs alla daga.
ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.