Skillrun 50+
Viltu efla þig og styrkja á skemmtilegan og öruggan hátt? 💪
Skillrun 50+ er eitt vinsælasta námskeið Hreyfingar — og það er engin tilviljun. Þú vinnur þol og styrk í stuttum, fjölbreyttum lotum þar sem þú stjórnar eigin álagi. Liðleiki, djúpvöðvar og foam flex nuddrúllur skapa jafnvægi í þjálfuninni og draga úr spennu og líkum á verkjum.
Af hverju Skillrun 50+?
Námskeiðið byggir á stuttum, viðráðanlegum lotum sem blanda saman þoli og styrk á einstaklega markvissan hátt. Myzone-púlsmælar styðja við árangursríka þjálfun og styrktarhlutinn inniheldur bæði líkamsþyngd, lóð, teygjur og djúpvöðvaþjálfun. Markmið er að stuðla að aukinni orku, betra úthaldi, auknum styrk og sjálfstrausti í daglegu lífi.
Fyrir hverja er Skillrun 50+?
Árangursríkt námskeið fyrir 50 ára og eldri sem vilja bæta þol, styrk og alhliða hreysti á öruggan og markvissan hátt. Hentar bæði byrjendum og lengra komnum og frábært fyrir þau sem vilja skora á sig á eigin forsendum.
Hvað segja námskeiðsþátttakendur um Skillrun 50+?
"Frábært námskeið. Framúrskarandi kennarar hvað varðar fagmennsku. Tímarnir vel skipulagðir. Gefa oft valkosti. Uppbyggjandi leiðsögn og hvatning. Samskipti öll til fyrirmyndar."
-Ánægður námskeiðsþátttakandi
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku í Skillrun sal
- Þjálfun 1x í viku í 32° sal
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum.
ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.