Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Tímatafla

MARC INBANE Kabuki bursti

Til baka í vefverslun

Kabuki burstinn frá MARC INBANE er förðunarbursti sem er hannaður af förðunarfræðingum sem eru leiðandi á sínu sviði. Burstinn er rúnnaður og með flötum toppi. Notaðu burstann til að blanda brúnkuspreyinu á svæði sem gleymdust eða til að forðast skil, en með honum færðu þétta og fallega áferð. 

Kabuki er einnig tilvalinn sem farðabursti, hvort sem er fyrir púður eða kremaðan fara.

Hárin á burstanum hafa verið meðhöndluð þannig að þau eru ekki ofnæmisvaldandi, án allra eiturefna og hafa fengið sérstaka bakteríudrepandi meðferð. Burstinn hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu. Þessi hágæða bursti er skyldueign fyrir alla sem er umhugað um förðun og fegurð.

4.690 kr.
MARC INBANE Kabuki bursti
MARC INBANE Kabuki bursti

Ítarlegri upplýsingar um vöru

Gleymdist blettur eða spreyjaðir þú of miklu?
Burstinn hjálpar þér að blanda vörunni til að fjarlægja sjáanleg samskeyti.

Leiðbeiningar til að ná bestum árangri:

Of mikið sprey:
1. Láttu brúnkuspreyið þorna á húðinni í um það bil 10 sekúndur
2. Nuddaðu burstanum með hringlaga hreyfingum fyrir jafna áferð.

Blettur sem gleymdist:
1. Spreyjaðu brúnkuspreyinu beint á burstann
2. Dúmpaðu umfram spreyi á tusku eða bréf
3. Nuddaðu burstanum með hringlaga hreyfingum fyrir jafna áferð.