Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Tímatafla

BL+ Eye Serum

Til baka í vefverslun

Áhrifaríkt augnserum sem gefur góðan raka, frískar, vinnur á fínum línum og dregur úr einkennum þreytu og þrota á viðkvæmu augnsvæðinu. Inniheldur hinn einstaka BL+ COMPLEX ásamt jarðsjó Bláa Lónsins, C-vítamíni, hýalúrónsýru, koffíni og lakkrísrót.

Virkni:
BL+ eye serum formúlan inniheldur einstaka samsetningu lífvirkra innihaldsefna sem draga úr sýnileika fínna lína, dökkum baugum og þrota, stuðla að auknum raka, örva kollagenframleiðslu í húð, draga úr niðurbroti kollagens, veita vörn gegn umhverfismengun og hafa andoxunaráhrif

Ávinningur:
Viðkvæmt augnsvæðið verður bjartara, frísklegra, þéttara og fær mikinn raka djúpt niður í húðlögin. Dregur úr fínum línum og sýnileg þreytueinkenni eru á bak og burt.

  • Kælandi stálrúlla frískar, tryggir auðvelda notkun
  • Létt áferð
  • Prófað af húðlæknum
  • Þróað fyrir þunna og viðkvæma húð augnsvæðisins
  • Án ilmefna
  • Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
  • Hentar öllum húðgerðum og grænkerum

    10 ml.

17.900 kr.
BL+ Eye Serum
BL+ Eye Serum BL+ Eye Serum BL+ Eye Serum BL+ Eye Serum BL+ Eye Serum BL+ Eye Serum

Ítarlegri upplýsingar um vöru

NOTKUN:

Notið kvölds og morgna á hreina húð. Setjið kælandi stálrúlluna undir miðja augnbrúnina og dragið hana í hálfhring; út að ytri augnkrók og áfram undir augað. Þrýstið augnseruminu gætilega inn í húðina með baugfingri.