Hjól - Beat
Hjól Beat er kraftmikill og fjörugur hjólatími þar sem geggjuð tónlist, hjólreiðar og frábær stemning mætast! Við hjólum í takt við tónlistina, tökum spretti, klifrum brekkur og leyfum orkunni í salnum að keyra stemninguna upp. Hér er lagalistinn í aðalhlutverki og markmiðið að svitna, brosa og hafa gaman!
Tíminn hentar öllum, hvort sem þú ert að stíga á hjól í fyrsta skipti eða ert vanur hjólari. Þú stjórnar álaginu sjálf/ur og finnur þinn takt.