Hot Pilates
Heitur Pilatestími sem byggist á hinu sívinsæla, klassíska Pilates æfingakerfi sem tónar og styrkir allan líkamann og bætir líkamsstöðu og liðleika með höfuð áherslu á að vinna út frá kjarna líkamans.
Áhersla er lögð á góða líkamsbeitingu og hver og einn fylgir sinni getu til að halda góðri tækni í æfingunum.
Mikið er lagt upp úr styrkingu kjarnavöðva (kvið-, bak-, grindarbotns- og rassvöðva).
Mantra: Sterkur, heilbrigður líkami með góðan liðleika og hreyfigetu.
Unnið er í 30° heitum sal.
ATH. Nauðsynlegt að mæta með stórt handklæði eða eigin jógadýnu.