Infra Pilates x Blue Lagoon Skin Science
Infra Pilates með Röggu Sveins í samstarfi við Blue Lagoon Skin Science.
Tími sem byggist á hinu sívinsæla, klassíska Pilates æfingakerfi sem tónar og styrkir allan líkamann og bætir líkamsstöðu og liðleika með höfuð áherslu á að vinna út frá kjarna líkamans.
Áhersla er lögð á góða líkamsbeitingu og hver og einn fylgir sinni getu til að halda góðri tækni í æfingunum.
Mikið er lagt upp úr styrkingu kjarnavöðva (kvið-, bak-, grindarbotns- og rassvöðva). Þessi tími eru kenndur í 30° innrauðum hita.
Allir þátttakendur fá glaðning frá Blue Lagoon Skin Science!
Ath. Nauðsynlegt að mæta með jóga handklæði, stórt handklæði eða eigin dýnu.