Infra Power Yoga
Kröftugt jógaflæði í 32-34° infraheitum sal. Hver jógastaða flæðir yfir í aðra sem skilar sér í auknum styrk, þoli og liðleika. Jógatími fyrir þá sem vilja endurnæra líkama og sál, styrkja sig, liðka og ná góðri slökun í lokin.
Þessir tímar eru fyrir alla bæði byrjendur og lengra komna þar sem boðið er upp á aðlögun fyrir öll getustig.
ATH. Nauðsynlegt að mæta með stórt handklæði eða eigin jógadýnu.