Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Tímatafla

Mild þjálfun og núvitund - kynningartími

Mild þjálfun og núvitund - kynningartími með Lilju Ketils Yin jógakennara!

Mild þjálfun og núvitund er námskeið sem hentar öllum þeim sem vilja æfa á minni hraða með áherslu á andlegt og líkamlegt jafnvægi. Þjálfari leggur mikla áherslu á tækni, jákvætt hugarfar og núvitund.

Á þessu námskeiði er lögð er áhersla á góða blöndu af flæði, styrk, teygjum og jafnvægis æfingum ásamt djúpri slökun. Allar æfingar eru unnar í núvitund með áherslu á öndun. Lagt er upp með að auka vellíðan og styrk andlega sem og líkamlega.

Mikið unnið með eigin styrk ásamt djúpum teygjum þar sem Yin Yoga tæknin er nýtt, en Yin Yoga teygjur og stöður losa um streitu, stuðla að uppbyggingu og vinna djúpt í bandvefinn.

- Ert þú að vinna þig upp úr veikindum eða kulnun, þarftu að koma þér af stað í rólegu öruggu umhverfi?

- Vilt þú styrkjast, flæða, sleppa tökunum, anda dýpra og losa um spennu?