Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Pop Up - Kveðjutími Lindu

Komdu og upplifðu einstakan kveðjutíma með Lindu Ósk þar sem þú færð brot af því allra besta sem hún hefur kennt hjá okkur í Hreyfingu síðustu 3 ár.

Þetta verður kraftmikill og fjölbreyttur tími þar sem þú mátt búast við að svitna, styrkjast, tóna líkamann, teygja vel á og jafnvel kynnast alveg nýjum vöðvum!

Tíminn er 90 mínútur og sameinar á áhrifaríkan hátt Pilates og Barre æfingar, tvö æfingakerfi sem vinna einstaklega vel saman til að styrkja djúpvöðva, bæta líkamsstöðu, samhæfingu og jafnvægi, ásamt því að virkja litlu en mikilvægu stuðningsvöðvana.

Til að hækka púlsinn og bæta við skemmtilegri áskorun verður einnig kraftmikil HIIT-lota. Í lok tímans slökum við svo á með ljúfum teygjum og bandvefslosun með nuddboltum sem hjálpa til við að losa um spennu og streitu í líkamanum.

Tíminn fer fram í 30° innrauðum hita sem eykur vellíðan og dýpkar teygjur og slökun.
Mikilvægt er að koma með eigið handklæði eða dýnu, ásamt eigin nuddbolta.

Þetta er einstakt tækifæri til að kveðja, njóta og gefa þér 90 mínútur sem bæði ögra og endurnæra.





Hreyfing - Jógahandklæði

5.592 kr.