Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Pop up - Power Pilates með Helgu Lind 🔥

Kynningartími á nýju og spennandi námskeiði með Helgu Lind!

Styrkur, stjórn og flæði í Infra heitum sal 🔥
Power Pilates sameinar kraftmiklar Pilates- og barre æfingar við markvissa styrktarþjálfun í Infra heitum sal. Unnið er með allan líkamann, með sérstaka áherslu á djúpvöðva sem styðja við góða líkamsstöðu, stöðugleika og skilvirka hreyfingu.

Af hverju Power Pilates?
Power Pilates byggir á grunni Pilates en bætir við barre- og styrktaræfingum sem gera tímana kraftmeiri og fjölbreyttari. Áhersla er lögð á að styrkja djúpvöðva kviðar, baks og grindarbotns ásamt því að efla allan líkamann. Kennd er markviss öndun sem hjálpar til við að virkja kjarnann, bæta einbeitingu og stuðla að slökun. Regluleg iðkun eykur styrk, liðleika, líkamsvitund og bætir líkamsstöðu – eiginleika sem nýtast jafnt í daglegu lífi sem annarri hreyfingu.

Fyrir hverja er Power Pilates?
Power Pilates hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Æfingarnar eru kenndar með mismunandi erfiðleikastigum þannig að hver og einn getur unnið út frá sinni getu. Hvort sem markmiðið er að styrkjast, bæta líkamsstöðu, auka liðleika eða njóta kraftmikillar þjálfunar í Infra heitum sal, þá er Power Pilates frábær leið til að byggja upp sterkan líkama.

Finndu þinn tíma

Salur
1
fimmtudagur 6. ágú.
17:30 - 18:20