Yin & bandvefslosun
Yin Yoga og bandvefslosun er mjúkur og rólegur tími sem hentar öllum sem vilja auka mýkt og liðleika, ná hugarró og róa taugakerfið. Í Yin Yoga er liðleikinn aukinn með því að halda teygjum í lengri tíma. Í bandvefslosun notum við nuddbolta til að nudda vöðva og bandvef. Hver tími endar á slökun.
Þátttakendur mæta með sína eigin nuddbolta en við mælum með 2x eins boltum (fást í móttöku Hreyfingar) og stórt jógahandklæði.
Sjá nuddboltana hér:
https://www.hreyfing.is/vorur/nuddboltar-litlir/
https://www.hreyfing.is/vorur/nuddboltar-storir/
ATH. Nauðsynlegt er að mæta með stórt handklæði eða eigin jógadýnu.