Nákvæm líkamsástandsmæling! Fáðu upplýsingar um aldur þinn m.v. líkamsástand, fituprósentu, vöðvamagn og m.fl. áhugavert á mettíma. Þú kaupir mælinguna hér og mætir svo til okkar í mælingu þegar þér hentar.
Ítarlegri upplýsingar um vöru
Líkamsástandsmæling í Boditrax er háþróuð og nákvæm og notuð af virtum heilsustofnunum víða um heim.
Með 30 sekúndna prófi færðu nákvæmar niðurstöður um 14 mismunandi þætti eins og:
- vöðvamassa og grófa dreifingu á honum,
- fituhlutfall og dreifingu á henni,
- hlutfall kviðfitu sem er sú fita sem hættulegust lífsstílssjúkdómum,
- vatnsmagn í líkamanum,
- æskilega kjörþyngd,
- grunnbrennslu,
- aldur þinn miðað við líkamsástand,
- líkamsþyngdarstuðullinn (BMI),
- beinmassa
og fleiri mikilvægar upplýsingar sem varða þína heilsu.