Sumarpakki 3
Æfðu hvar sem er í sumar! 🌞
Sumarpakki 3 – fullkomni sumarpakkinn fyrir æfingar, endurheimt og vellíðan
Þessi pakki sameinar allt sem þarf til að styðja við hreyfingu, styrk, endurheimt og vellíðan í sumar. Hvort sem þú vilt taka góða æfingu, losa um stífa og þreytta vöðva eða eiga auðvelt með að halda þínum venjum við á ferðalögum, þá er Sumarpakki 3 tilvalinn félagi í sumar.
Sumarpakki 3 inniheldur:
- 2 stk. litlir nuddboltar
- 1 stk. blöðrubolti
- Hreyfing ökklalóð (1 kg hvort, hægt að létta)
- Sippuband frá Fitco
- 3 Fitco teygjur í mismunandi styrkleikum
- Hreyfing handklæði
- Hreyfing íþróttataska
Ítarlegri upplýsingar um vöru
Litlir nuddboltar (2 stk.)
Mjúkir og sérhannaðir nuddboltar sem hjálpa til við að losa um spennu og mýkja þreytta og auma vöðva. Vinna vel á þrálátum eymslum og stuðla að betri hreyfigetu og endurheimt.
Blöðrubolti
Sérhannaður nuddbolti úr mjúku gúmmíi sem veitir gott grip við húðina og gerir nuddið bæði öruggt og áhrifaríkt. Hönnunin gerir kleift að ná djúpt inn í bandvefinn án þess að valda óþarfa álagi á bein, sinar eða liðbönd, fyrir þægilega og árangursríka bandvefslosun.
Sippuband frá Fitco Gæðasippuband sem hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum. Tilvalið fyrir þolþjálfun, upphitun og hraðaæfingar.
Hreyfing ökklalóð (1 kg hvort, hægt að létta)Fjölhæf ökklalóð sem auka álag og virkni í fjölmörgum æfingum. Henta einstaklega vel fyrir styrktarþjálfun, Pilates, Barre, göngur og aðrar æfingar þar sem markmiðið er að auka styrk, þol og stöðugleika.
Þrjár teygjur í mismunandi styrkleikum Æfingateygjur sem gera þér kleift að þjálfa á þínum eigin forsendum. Mismunandi styrkleikar gera auðvelt að aðlaga æfingar að getu hvers og eins og auka álagið eftir því sem styrkur og færni eykst.
Hreyfing handklæði Vandað jógahandklæði frá Hreyfingu. Sílíkonhnúðar halda handklæðinu á sínum stað, það dregur í sig meiri vökva en hefðbundin handklæði og smellpassar á dýnuna svo þú náir hámarksárangri í krefjandi stöðum.
Hreyfing taska Vönduð íþróttataska frá Hreyfingu, fullkomin í heilsuræktina, sundið og ferðalagið. Með sérstöku vatnsheldu hólfi fyrir blaut handklæði og baðföt, sér hólfi fyrir æfingaskó og vasaplássi fyrir síma, vatnsflösku og annað nauðsynlegt. Hægt að hengja á arminn eða bera á öxlinni.
Allt sem þú þarft fyrir hreyfingu, endurheimt og skemmtilegar æfingar í einum vönduðum pakka. Fullkominn félagi fyrir sumarið – hvort sem þú ert heima, á ferðalagi eða í fríinu 💪☀️