Eðalþjálfun 3x í viku
Viltu upplifa fjölbreytta og kraftmikla þjálfun í frábærri stemningu? 🔥✨
Eðalþjálfun sameinar styrk, þol og liðleika í heitum sal og á hjólum, með allt frá Infra styrk og þungum ketilbjöllum yfir í Barre, kjarnaæfingar og skemmtilegar HIIT-lotur. Þú færð áhrifaríka, hvetjandi og skemmtilega þjálfun sem skilar orku, krafti og bættri líðan — allt í hópi góðra kvenna.
Af hverju Eðalþjálfun?
Eðalþjálfun er fjölbreytt og uppbyggjandi námskeið fyrir konur sem vilja þjálfa styrk, þol og liðleika á markvissan og skemmtilegan hátt. Unnið er með fjölbreyttum æfingakerfum, þar á meðal Infra styrk með þungum lóðum og ketilbjöllum, Hot Fitness, Barre og kjarnaþjálfun, sem og HIIT-þjálfun á hjólum sem eykur púls, þol og eftirbruna. Þjálfunin fer að hluta fram í innrauðum hita og skapar jafnvægi milli krafts, hreyfanleika og vellíðunar.
Fyrir hverja er Eðalþjálfun?
Hentar öllum konum sem vilja þjálfa af ástríðu og fá stuðning í kraftmiklum hópi.
Hvað segja námskeiðsþátttakendur um Eðalþjálfun?
"Anna er í algjörum sérflokki. Frábært námskeið í alla staði. Tímarnir og prógrammið hentaði mér fullkomlega. Hæfileg og fjölbreytt blanda af styrktaræfingum og teygjum. Það er alltaf gaman í tímum hjá Önnu, hún er alger meistari í að peppa fólk áfram og er með bráðsmitandi jákvæða orku."
-Ánægður námskeiðsþátttakandi
Innifalið:
- Lokaðir tímar 3x í viku
- Aðgangur að Hreyfing spa virka daga
- Baðhandklæði við hverja komu
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Hvetjandi og fræðandi tölvupóstar 1x í viku
- Aðgangur að lokuðum Facebook hóp
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum
Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.
„Dásamlegt námskeið í alla staði með heimsklassa þjálfara, mjög fjölbreytt og skemmtilegt.“