Kraftur
Viltu auka styrk og ná meiri árangri í lyftingum? 🏋️
Kraftur er markviss og skipulögð þjálfun sem kennir þér rétta tækni, styrkir alla helstu vöðvahópa og eykur grunnbrennslu. Fyrir þá sem vilja taka næsta skref í styrk, jafnvægi og árangri.
Af hverju Kraftur?
Markviss lyftingaþjálfun sem styrkir alla helstu vöðvahópa, bætir líkamsstöðu og eykur grunnbrennslu. Aðaláhersla er á tækni og líkamsbeitingu í hnébeygju, réttstöðulyftu og bekkpressu með það að markmiði að byggja upp alhliða styrk í líkamanum. Þú lærir rétta tækni til að hámarka árangur með vel skipulögðu æfingakerfi þar sem álag, endurtekningar og jafnvægi eru úthugsuð.
Fyrir hverja er Kraftur?
Hentar bæði byrjendum og lengra komnum, æfingar og þyngdir eru skalaðar upp og niður eftir getu hvers og eins. Frábært fyrir þá sem vilja brjóta upp stöðnun í þjálfun.
Hvað segja námskeiðsþátttakendur um Kraft?
"Hermann er alveg frábær. Svo faglegur og flottur, duglegur að leiðbeina og leiðrétta og fer vel yfir æfingarnar. Svo er hann líka virkilega skemmtilegur þjálfari, gaman að umgangast hann og hann nær vel til allra." og "Todda er ekki bara góður þjálfari heldur skín í gegn hvað hún hefur hagsmuni hvers og eins kúnna að leiðarljósi. Að öðrum þjálfurum ólöstuðum hefur hún yfirburði þegar kemur að þjálfun, „peppi“ og drifkrafti.".
-Ánægður námskeiðsþátttakandi
- Þjálfun 2x í viku
- Boditrax – aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Aðgangur að tækjasal og opnum tímum á námskeiðsdögum*
- Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum á námskeiðsdögum*
*Meðlimir Hreyfingar njóta fulls aðgangs alla daga.
ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.