Síðdegisþrek
Viltu öðlast aukinn kraft, bætta orku og skýrari fókus síðdegis? ⚡️🔥
Síðdegisþrek sameinar styrktaræfingar, hjólalotur og Infra þjálfun í öflugri blöndu sem styrkir, bætir þol og heldur þér í góðu jafnvægi. Fjölbreytni, skemmtilegar áskoranir og góð leiðsögn tryggja að þú nærð árangri — á þínum hraða og þínum forsendum.
Af hverju Síðdegisþrek?
Síðdegisþrek er kraftmikil og fjölbreytt þjálfun sem sameinar styrk og þol með áherslu á góða líkamsbeitingu. Unnið er með lotuþjálfun á hjólum, styrktaræfingum með ketilbjöllum, lóðum og öðrum áhöldum, auk Infra tíma einu sinni í viku. Fjölbreytnin tryggir jafnvægi í þjálfuninni og árangur fyrir þátttakendur á öllum getustigum. Markmiðið er að öðlast aukinn kraft, betri líðan og sterkara sjálfstraust — á þínum forsendum.
Fyrir hverja er Síðdegisþrek?
Síðdegisþrek er fyrir öll þau sem vilja byggja upp styrk, kraft og aukna orku í daglegu lífi. Hentar öllum getustigum sem vilja læra hvað virkar fyrir sinn líkama og æfa í hvetjandi hópi. Námskeiðið er leitt af Gígju, MSc í heilsusálfræði.
Innifalið:
- Þjálfun 3x í viku
- Fjölbreytt æfingakerfi - Styrkur / Infratímar / Hjól o.fl.
- Hvetjandi tölvupóstar 1x í viku
- Fróðleikur og fræðsla sent út reglulega til að hvetja þig enn frekar áfram
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum pottiog gufuböðum
ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.