Stirðir en sterkir
Af hverju Stirðir en sterkir?
Liðleiki skiptir miklu máli fyrir alhliða líkamsástand og er fyrirbyggjandi gagnvart íþróttameiðslum ofl. Markviss blanda af liðleika-, hreyfiteygju- og styrktaræfingum sem miða að því að losa um stífleika, bæta hreyfigetu og draga úr verkjum. Sérstaklega hannað fyrir karlmenn sem vilja auka styrk, koma í veg fyrir meiðsl, bæta liðleika og hreyfigetu. Fullkomið fyrir þá sem vilja losna við spennu og byggja upp kraft og mýkt í líkamanum.
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum.
ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.
„Mjög gott námskeið, akkúrat það sem mig vantaði. Líður eins og líkaminn sé að vakna úr hálfgerðum dvala og nú er hann tilbúinn í meiri átök. Ég finn stóran mun á líðan í skrokknum.“