Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Styrkur með Stínu 3x í viku

10. ágúst
3 vikur
16.900 kr.
23.900 kr. Aðgangur að Hreyfingu á námskeiðsdögum
Netgíró

Viltu finna meiri styrk, kraft og orku í daglegu lífi? ✨
Styrkur með Stínu er fyrir konur sem vilja þjálfa á markvissan og hvetjandi hátt, með áherslu á þungan styrk, stutta ákefð og endurheimt sem skilar árangri. Fjölbreyttar æfingar og tímar í heitum sal miða að því að þú styrkist, liðkist og upplifir betri vellíðan á þínum forsendum.

Af hverju Styrkur með Stínu?
Þú lærir hvað hentar þínum líkama og aðstæðum á meðan þú nýtur stuðnings öflugs hóps. Lögð er áhersla á þungan styrk, stutta og markvissa ákefð, góða endurheimt og næringu sem styður þjálfunina. Tímarnir eru fjölbreyttir — lotuþjálfun, lyftingar, stöðvar og hjól — og einu sinni í viku er unnið með styrk og liðleika í 30–32° innrauðum hita. Markmiðið er að hjálpa þér að finna meiri kraft, betri líðan og sterkara sjálfstraust — á þínum forsendum.

Fyrir hvern er Styrkur með Stínu?
Markviss hreyfing fyrir konur sem vilja byggja upp styrk, kraft og aukna orku í daglegu lífi. Hentar konum á öllum getustigum sem vilja læra hvað virkar fyrir sinn líkama og æfa í hvetjandi og stuðningsríku samfélagi. 

Hvað segja námskeiðsþátttakendur um Styrkur með Stínu?
"Stína alltaf hvetjandi og er "ein af hópnum". Fjölbreyttar æfingar, mikil hvatning, skemmtileg og traust. Frábærir hvatninga- og upplýsingapóstar m. tillögum að æfingum/mataræði sem styður við árangur."

-Ánægður námskeiðsþátttakandi


Innifalið:

*Meðlimir Hreyfingar njóta fulls aðgangs alla daga. 

ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.

SS1

mánudagur
kl. 06:10-07:00
Salur 1
þriðjudagur
kl. 06:10-07:00
Salur 4+5
fimmtudagur
kl. 06:10-07:00
Salur 2
Tímabil : 10 ágúst til 27 ágúst
Skrá á námskeið

SS2

mánudagur
kl. 07:15-08:05
Salur 2
miðvikudagur
kl. 07:15-08:05
Salur 1
fimmtudagur
kl. 07:15-08:05
Salur 4+5
Tímabil : 10 ágúst til 27 ágúst
Skrá á námskeið

MyZone Switch

24.990 kr.

Manduka Jógahandklæði - Marglit

11.990 kr. 7.000 kr. -42%

10 skipta grautakort

9.900 kr. 8.910 kr. -10%