Silica Purifying Shampoo
Meðferðarhársápa sem nærir, sefar og kemur jafnvægi á þurran og viðkvæman hársvörð.
Silica Purifying Shampoo er sefandi, gelkennd meðferðarhársápa sem hreinsar og kemur jafnvægi á þurran og viðkvæman hársvörð. Inniheldur endurnærandi steinefni og styrkjandi kísil úr jarðsjó Bláa Lónsins. Meðferðarhársápan er notuð í Lækningalind Bláa Lónsins sem hefur boðið upp á áhrifaríka og náttúrulega meðferð við psoriasis síðan 1994.
![Silica Purifying Shampoo](/media/4m1bp2ua/silica-purifiing-sha.jpg?width=640&format=webp&quality=100)
![Silica Purifying Shampoo](/media/4m1bp2ua/silica-purifiing-sha.jpg?height=100&width=100&rmode=fit&bgcolor=fff&format=webp&quality=100)
Ítarlegri upplýsingar um vöru
Notið 2-3 sinnum í viku í einn mánuð. Notið síðan einu sinni í viku í fyrirbyggjandi skyni.
Varist snertingu við augu.