*SkillX tímarnir eru í boði fyrir Heilsuaðild og þá sem eru með sérstakan SkillX aðgang*
Fjölbreytt þjálfun með ýmsum skemmtilegum áskorunum. Æfingarnar samanstanda af kraftlyftingum, ólympískum lyftingum, þol og úthaldsæfingum ásamt liðleikaþjálfun.
Þessir tímar eru hannaðir fyrir breiðan hóp þátttakenda. Þjálfari skalar æfingar upp eða niður eftir þörfum hvers og eins þannig að hámarks árangur náist. Byrjendur og lengra komnir geta auðveldlega verið saman í tíma.
SkillX tímarnir henta öllum þeim sem eru tilbúnir að taka vel á og hafa gaman í kraftmikilli þjálfun og vilja bæta styrk og form.