Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Yoga Nidra

Yoga Nidra er leidd djúpslökun sem hefur djúpstæð áhrif til heilunar, losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Nidra þýðir svefn og Yoga þýðir eining, þannig þýðir Yoga Nidra vakandi svefn þar sem meðvitundin er vakandi en líkaminn fær djúpa hvíld og hugurinn hvílir í djúpri kyrrð. Talið er að 45 mínútur í Yoga Nidra geti verið á við 4 tíma svefn. Margir hafa fundið mikla heilsubót og andlega og líkamlega vellíðan í því að iðka Yoga Nidra. Tíminn er kenndur í 28° hlýjum sal.

ATH. Gott er að mæta með púða og mjúka dýnu til að láta fara ennþá betur um sig en nauðsynlegt er annars að mæta með stórt handklæði. Mikilvægt er að mæta stundvíslega. Tíminn hefst á slaginu og eftir það er ekki hægt að hleypa inn, þar sem það truflar flæði tímans og dregur úr heildarupplifun og ávinningi þátttakenda.

Manduka Jógahandklæði - Marglit

Finndu þinn tíma

Salur
5
mánudagur 2. mar.
20:00 - 21:00