Spurt og svarað
Áskriftarsamningar, binditími og staðgreidd kort
Í stuttu máli er staðgreitt kort greitt fyrirfram og hefur skýran upphafs og endatíma. Áskriftarsamningur er samningur þar sem greitt er mánaðarlega þar til að samningnum er sagt upp.
Staðgreitt kort er greitt fyrirfram og gildir í ákveðinn tíma frá kaupdegi. Að þeim tíma loknum rennur það út og þarf viðkomandi að greiða nýtt kort til að halda áfram. Staðgreitt kort á sér skýran upphafs og endatíma.
Áskriftarsamningur er ótímabundinn samningur. Viðkomandi greiðir mánaðarlega í takt við gildandi verðskrá þar til samningi er sagt upp á Mínum síðum.
Áskriftarsamningur með 12 mánaða binditíma er samningur þar sem viðkomandi festir verð sitt í 12 mánuði og getur á þeim tíma ekki sagt upp samningnum. Að binditíma loknum greiðir viðkomandi í takt við gildandi verðskrá fyrir áskriftarsamning með binditíma en samningurinn er ekki lengur bundinn og hægt að segja honum upp á Mínum síðum.
Athugið að áskriftarsamningi þarf alltaf að segja upp hvort sem samningurinn er með eða án binditíma. Við hvetjum alla til að kynna sér skilmála vel áður en gengið er frá kaupum.
Í stuttu máli er munurinn sá að hægt er að segja upp áskriftarsamningi án binditíma hvenær sem er en áskriftarsamningi með 12 mánaða binditíma er einungis hægt að segja upp eftir 12 mánuði þegar binditíma er lokið.
Áskriftarsamningur er ótímabundinn samningur. Viðkomandi greiðir mánaðarlega í takt við gildandi verðskrá þar til samningi er sagt upp á Mínum síðum.
Áskriftarsamningur með 12 mánaða binditíma er samningur þar sem viðkomandi festir verð sitt í 12 mánuði og getur á þeim tíma ekki sagt upp samningnum. Að binditíma loknum greiðir viðkomandi í takt við gildandi verðskrá fyrir áskriftarsamning með binditíma en samningurinn er ekki lengur bundinn og hægt að segja honum upp á Mínum síðum.
Athugið að áskriftarsamningi þarf alltaf að segja upp hvort sem samningurinn er með eða án binditíma. Við hvetjum alla til að kynna sér skilmála vel áður en gengið er frá kaupum.
Binditími samnings er það tímabil sem aðilar samnings skuldbinda sig til að halda samningnum í gildi áður en hægt er að segja honum upp.
Áskriftarsamningur með 12 mánaða binditíma er samningur þar sem viðkomandi festir verð sitt í 12 mánuði og getur á þeim tíma ekki sagt upp samningnum. Að binditíma loknum greiðir viðkomandi í takt við gildandi verðskrá fyrir áskriftarsamning með binditíma en samningurinn er ekki lengur bundinn og hægt að segja honum upp á Mínum síðum.
Eftir að binditíma samnings lýkur framlengist kort viðkomandi einn mánuð í einu í takt við gildandi verðskrá þar til samningi er sagt upp á Mínum síðum.
Athugið að uppsögn á samningi þarf að berast í síðasta lagi fyrir 13. dag mánaðar svo hún geti tekið gildi strax um mánaðamót.
Á Mínum síðum finnur þú upplýsingar um binditíma samnings þíns eða gilditíma korts.
Hafir þú skráð þig í áskriftarsamning hjá Hreyfingu mun kortið þitt gilda þar til því er sérstaklega sagt upp á Mínum síðum. Uppsögn á samningi þarf að berast fyrir 13. dag mánaðar svo hún geti tekið gildi strax um mánaðamót.
Já hægt er að færa sig á milli aðildarleiða svo framarlega sem að binditíma samnings sé lokið. Athugið að það er hægt að færa sig úr Grunnaðild yfir í Heilsuaðild án þess að binditíma sé lokið, en ekki öfugt. Til að breyta úr einni aðildarleið yfir í aðra er best að senda tölvupóst á radgjafar@hreyfing.is
Í upphafi samnings er boðið upp á sérstakt forfallagjald á 2500 kr.
Forfallagjald gerir meðlimum kleift að rifta samningi gegn riftunargjaldi ef meðlimur flytur út fyrir höfuðborgarsvæðið eða erlendis, eða getur ekki stundað líkamsþjálfun vegna langvarandi veikinda eða alvarlegs slyss.
Skal í slíkum tilfellum senda hér inn skriflega beiðni ásamt tölvutæku afriti af læknisvottorði eða sönnun um flutning á lögheimili.
Riftunargjald er 30% af eftirstöðvum binditíma samnings.
Hægt er að leggja inn kort í Heilsuaðild einu sinni á ári í einn mánuð. Binditími samnings framlengist um innlagnartímann. Ekki er hægt að leggja inn kort í öðrum aðildarleiðum.
Beiðni um innlögn þarf að berast í gegnum Mínar síður, ekki er hægt að leggja inn kort í gegnum síma eða í móttökunni.
Athugið að ekki er hægt að leggja kort inn aftur í tímann og innlögn er ekki möguleg ef skuld er á viðskiptareikningi viðkomandi.
Ef um alvarlegan heilsubrest er að ræða sem veldur því að iðkandi megi ekki skv. læknisráði stunda heilsurækt er velkomið að senda hér inn læknisvottorð og beiðni um að láta frysta kort í ákveðinn tíma. Slíkar beiðnir eru teknar til skoðunar og reynt að koma til móts við iðkendur eftir fremsta megni.
Greiðslur, kortaupplýsingar & kvittanir
Æfingagjöld eru alltaf greidd fyrirfram í upphafi mánaðar. Mánaðarlegar greiðslur meðlima eru skuldfærðar á greiðslukort 14. dag mánaðar fyrir komandi mánuð.
Ef ekki tekst að skuldfæra greiðslukort fer krafan sjálfkrafa inn á heimabanka. Athugið að 250 kr. færslugjald bætist við mánaðargjald þegar greiðsluseðill er sendur í heimabanka.
Ef ekki tekst að skuldfæra greiðslukort fer krafan sjálfkrafa inn á heimabanka. Það getur gerst ef t.d. ekki er næg innistæða á kortinu eða gildistími korts hefur runnið út. Athugið að 250 kr. færslugjald bætist við mánaðargjald þegar greiðsluseðill er sendur í heimabanka.
Hægt er að uppfæra kortaupplýsingar í móttöku Hreyfingar eða með því að hafa samband við móttöku beint í s. 414-4000.
Þú færð alltaf senda löggilda greiðslukvittun frá vefverslun okkar þegar þú skráir þig á námskeið eða í aðild.
Ef þú finnur ekki greiðslukvittunina í tölvupóstinum þínum getur þú nálgast greiðslukvittanir á Mínum síðum undir Rafræn skjöl, þar ættir þú jafnframt að geta valið tímabil fyrir umbeðna kvittun. Athugið að það getur tekið fáeinar mínútur frá því að greiðslukvittun er sótt og þar til hún birtist á listanum.
Nánari upplýsingar um íþróttastyrki geta meðlimir fengið hjá sínu stéttarfélagi eða vinnuveitanda.
Uppsögn & breytingar samninga
Við viljum tryggja meðlimum okkar skjóta og góða þjónustu og því þarf ósk um uppsögn að berast okkur í gegnum Mínar síður.
Uppsögn á samningi þarf að berast í gegnum Mínar síður fyrir 13. dag mánaðar svo hún geti tekið gildi strax um mánaðarmót.
Ekki er hægt að segja upp samningi nema að binditíma samnings sé lokið og viðkomandi reikningur sé skuldlaus. Upplýsingar um binditíma samnings er að finna á Mínum síðum.
Ef að binditíma samnings er lokið og viðkomandi reikningur er skuldlaus er hægt að segja upp samningi hvenær sem er. Uppsögn þarf að berast í síðasta lagi 13. dag mánaðar eigi uppsögn að taka gildi frá og með næstu mánaðarmótum.
Við viljum tryggja meðlimum okkar skjóta og góða þjónustu og því þarf ósk um uppsögn að berast okkur í gegnum Mínar síður. Þar má jafnframt nálgast upplýsingar um binditíma samnings og gildistíma korts.
Já við viljum gæta sanngirnis og látum sama gilda fyrir alla. Ef biðlistaskráning er enn í gildi þá þarf að skrá sig á biðlista til að komast aftur að í Hreyfingu.
Hægt er að leggja inn kort í Heilsuaðild einu sinni á ári í einn mánuð. Binditími samnings framlengist um innlagnartímann. Ekki er hægt að leggja inn kort í öðrum aðildarleiðum. Beiðni um innlögn þarf að berast í gegnum Mínar síður, ekki er hægt að leggja inn kort í gegnum síma eða í móttökunni. Athugið að ekki er hægt að leggja kort inn aftur í tímann og innlögn er ekki möguleg ef skuld er á viðskiptareikningi viðkomandi.
Ef um alvarlegan heilsubrest er að ræða sem veldur því að iðkandi megi ekki skv. læknisráði stunda heilsurækt er velkomið að senda hér inn læknisvottorð og beiðni um að láta frysta kort í ákveðinn tíma. Slíkar beiðnir eru teknar til skoðunar og reynt að koma til móts við iðkendur eftir fremsta megni.
Í upphafi samnings er boðið upp á sérstakt forfallagjald á 2500 kr. Forfallagjald gerir meðlimum kleift að rifta samningi gegn riftunargjaldi ef meðlimur flytur út fyrir höfuðborgarsvæðið eða erlendis, eða getur ekki stundað líkamsþjálfun vegna langvarandi veikinda eða alvarlegs slyss.
Skal í slíkum tilfellum senda hér inn skriflega beiðni ásamt tölvutæku afriti af læknisvottorði eða sönnun um flutning á lögheimili.
Riftunargjald er 30% af eftirstöðvum binditíma samnings.
Ef um alvarlegan heilsubrest er að ræða sem veldur því að iðkandi megi ekki skv. læknisráði stunda heilsurækt er velkomið að senda hér inn læknisvottorð og beiðni um að láta frysta kort í ákveðinn tíma. Slíkar beiðnir eru teknar til skoðunar og reynt að koma til móts við iðkendur eftir fremsta megni.
Hægt er að óska eftir nafnabreytingu á samningi. Nafnabreytingargjald er 3.000 kr.
Við viljum tryggja meðlimum okkar skjóta og góða þjónustu og því þarf ósk um nafnabreytingu að berast okkur í gegnum Mínar síður.
Hóptímar
Hreyfing býður upp á fjölbreytt úrval af opnum tímum og æfingatímum til að koma til móts við mismunandi þarfir og óskir meðlima. Yfir 100+ tímar í hverri viku.
Upplýsingar um alla hóptíma, þjálfara og tímasetningar má finna hér.
Skráning í hóptíma fer fram á vefnum. Til þess að geta skráð þig í tíma þarft þú að vera innskráður á Mínar síður. Skráning í tíma hefst 25 klukkustundum fyrir tímann (26 klukkustundum fyrir meðlimi Heilsuaðildar). Síðasti möguleiki til að skrá sig í tíma er 60 mínútum áður en að tíminn hefst.
Afskráning úr hóptíma fer fram á vefnum. Til þess að geta afskráð þig úr tíma þarft þú að vera innskráður á Mínar síður. Síðasti möguleiki til að afskrá sig úr tíma er 60 mínútum áður en að tíminn hefst.
Ef þú ert skráð/ur í tíma en mætir ekki og hefur ekki afskráð þig innan tímamarka ferðu sjálfkrafa í 3 daga skráningarbann. Það á einnig við ef þú fékkst pláss í gegnum biðlista. Skráningarbann byrjar að telja niður kl. 9:00 daginn eftir að ekki var mætt í umræddan tíma.
Skráningarkerfið er sjálfvirkt og tryggir jafnt aðgengi og góða upplifun fyrir alla meðlimi.
- Skráning / afskráning fer fram á vefnum en mikilvægt er að vera innskráð/ur á Mínar síður.
- Mæting er staðfest með komu í gegnum augnskanna.
- Hægt er að skrá sig í tíma með 25 klst. fyrirvara (26 klst. fyrir meðlimi Heilsuaðildar).
- Síðasti möguleiki að skrá sig / afskrá sig er 60 mínútum áður en tími hefst.
- Ef viðkomandi er skráður í tíma en mætir ekki fer viðkomandi sjálfkrafa í 3 daga skráningarbann. Það á einnig við ef að viðkomandi komst inn af biðlista. Skráningarbann byrjar að telja niður kl. 9:00 daginn eftir að ekki var mætt í umræddan tíma.
- Mikilvægt er að mæta tímanlega – ef viðkomandi er ekki mættur þegar tími hefst er plássið ekki lengur tryggt. Ef laus pláss eru til staðar við upphaf tíma geta þeir sem eru á biðlista tekið plássið.
- Það er sjálfsagt að mæta á æfingu eða í tíma ef laust pláss þrátt fyrir að vera í skráningarbanni.
Markmiðið með þessu fyrirkomulagi er að tryggja sanngirni og að sem flestir komist að.
Ef þú sérð ekki fram á að komast í bókaðan tíma biðjum við þig að afskrá þig tímanlega. Afskráningu lýkur 60 mínútum áður en tími hefst.
Ef þú ert skráð/ur í tíma en mætir ekki og hefur ekki afskráð þig innan tímamarka ferðu sjálfkrafa í 3 daga skráningarbann. Það á einnig við ef þú fékkst pláss í gegnum biðlista. Skráningarbann byrjar að telja niður kl. 9:00 daginn eftir að ekki var mætt í umræddan tíma.
Góðu fréttirnar. Þú ert alltaf velkomin/n að mæta í stöðina og æfa.
Ef laust pláss er í tíma máttu einnig mæta þrátt fyrir skráningarbann.
Markmiðið með þessu fyrirkomulagi er að tryggja sanngirni og að sem flestir komist að.
Já — þegar þú hefur fengið pláss af biðlista gilda sömu reglur og fyrir aðra skráningu.
Ef þú kemst ekki í tímann þarftu að afbóka með að minnsta kosti 60 mínútna fyrirvara. Ef það er ekki gert fer sjálfkrafa af stað 3 daga skráningarbann sem byrjar að telja kl. 09:00 daginn eftir að ekki var mætt í tíma.
Við hvetjum alltaf til þess að afbóka um leið og þú veist að þú kemst ekki.
Þannig gefst næsta manneskju á biðlista tækifæri til að komast að.
Þú ert alltaf velkomin/n að mæta í stöðina og æfa. Ef laust pláss er í tíma máttu einnig mæta þrátt fyrir skráningarbann.
Markmiðið með skráningarkerfinu er að tryggja sanngirni og að sem flestir komist að.
Við biðjum alla um að mæta stundvíslega.
Ef þú ert ekki mætt/ur þegar tíminn hefst er plássið þitt ekki tryggt og aðili á biðlista getur tekið plássið. Þeir sem eru á biðlista eiga rétt á að taka laust pláss á mínútunni sem tíminn byrjar ef skráður þátttakandi er ekki mættur.
Þetta fyrirkomulag tryggir sanngirni og að sem flestir fái notið tímans.
Námskeið & Einkaþjálfun
Hreyfing býður upp á fjölbreytt úrval af námskeiðum til að koma til móts við mismunandi þarfir og óskir meðlima og gesta. Athugið að hægt er að skrá sig á námskeið án þess að vera meðlimur í Hreyfingu.
Upplýsingar um námskeið má finna hér.
Já - hægt er að skrá sig á námskeið án þess að vera meðlimur í Hreyfingu.
Upplýsingar um námskeið má finna hér.
Já - ef það er laust pláss á námskeiðinu þá er hægt að skrá sig eftir að það er hafið. Sendu okkur tölvupóst á hreyfing@hreyfing.is og við skoðum málið saman.
Almennt ganga þeir sem skrá sig á fullt námskeið fyrir við skráningu á námskeið.
Ef það er ennþá laust pláss daginn sem námskeiðið hefst er hægt að skoða möguleika á að taka hluta af námskeiðinu. Sendu okkur tölvupóst á hreyfing@hreyfing.is og við skoðum málið saman.
Við skiljum vel að ófyrirséð atvik geta komið upp.
Vegna fjölda þátttakenda á námskeiðum þurfum við þó að gæta sanngirni og fylgja þeim skilmálum sem samþykktir eru við skráningu. Sjá skilmála hér.
Ef þú þarft að sækja um að fá námskeið bætt eða frestað, vinsamlegast sendu inn beiðni hér.
Hvert mál er metið fyrir sig í samræmi við gildandi skilmála.
Heilsurækt undir leiðsögn einkaþjálfara er góður valkostur og frábær leið til að tryggja að æfingar séu gerðar rétt og settar saman á þann hátt að þjálfunin skili sem bestum árangri.
Einkaþjálfarar í Hreyfingu starfa sjálfstætt og stýra sinni tímatöflu og verðskrá sjálfir. Upplýsingar um alla starfandi einkaþjálfara og tölvupóstföng þeirra má finna hér.