Fit Pilates
Af hverju Fit Pilates?
Klassískt Pilates með kröftugu ívafi eykur púls, styrk og þol. Æfingarnar miða að því að byggja upp djúpa kjarnavöðva (kvið-, bak-, grindarbotns- og rassvöðva), bæta líkamsstöðu og auka liðleika. Hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum sem vilja styrkja líkamann á mjúkan en árangursríkan hátt og auka hreyfigetu í leiðinni. Athugið að í þessum tímum eru þátttakendur ekki í skóm. Einnig er nauðsynlegt að mæta með jóga handklæði, stórt handklæði eða eigin dýnu.
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku í hlýjum sal (28°)
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Aðgangur að Heilsusíðum Hreyfingar
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum.
ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.
„Uppáhalds tímarnir mínir, skemmtilegir og vandaðir. Bestu tímar sem ég hef sótt. “