Lyftingar
Viltu styrkja þig á öruggan og árangursríkan hátt? 💪
Lyftingar er fjölbreytt og uppbyggjandi námskeið í litlum hópi þar sem þú færð persónulega leiðsögn, skalanlegar æfingar og stuðning til að byggja upp styrk og vellíðan — á þínum eigin hraða.
Af hverju Lyftingar?
Aukinn alhliða líkamsstyrkur getur breytt lífinu. Markviss styrktarþjálfun í litlum hópi þar sem hver og einn vinnur út frá eigin getu. Þú byggir upp styrk, aukið sjálfstraust í æfingum og betri líkamsvitund undir leiðsögn þjálfara. Uppbyggjandi námskeið í góðum hópi þar sem hver og einn vinnur að sínum markmiðum.
Fyrir hverja er Lyftingar?
Tilvalið fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Farið er vel yfir tækni og líkamsbeitingu í lyftingum, þjálfunin er fjölbreytt með skemmtilegum áskorunum og erfiðleikastigið er aðlagað fyrir hvern og einn.
Hvað segja námskeiðsþátttakendur um Lyftingar?
"Aldís er langbesti líkamsræktarleiðbeinandi sem ég hef nokkurn tímann haft. Lærði mjög margt gagnlegt um lyftingar, einkum mjög góðar og gagnlegar upphitunaræfingar."
"Ólöf er frábær þjálfari góðar leiðbeiningar og mikil hvatning. Alltaf skemmtilegt og krefjandi."
-Ánægðir námskeiðsþátttakendur
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum pottum og gufuböðum
ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.