Morgunþrek 2x í viku
Viltu finna meiri styrk, kraft og orku í daglegu lífi? ✨
Morgunþrek er fyrir konur sem vilja þjálfa á markvissan og hvetjandi hátt, með áherslu á þungan styrk, stutta ákefð og endurheimt sem skilar árangri. Fjölbreyttar æfingar og tímar í heitum sal miða að því að þú styrkist, liðkist og upplifir betri vellíðan á þínum forsendum.
Af hverju Morgunþrek?
Þú lærir hvað hentar þínum líkama og aðstæðum á meðan þú nýtur stuðnings öflugs hóps. Lögð er áhersla á þungan styrk, stutta og markvissa ákefð, góða endurheimt og næringu sem styður þjálfunina. Tímarnir eru fjölbreyttir — lotuþjálfun, lyftingar, stöðvar og hjól — og einu sinni í viku er unnið með styrk og liðleika í 30–32° innrauðum hita. Markmiðið er að hjálpa þér að finna meiri kraft, betri líðan og sterkara sjálfstraust — á þínum forsendum.
Fyrir hvern er Morgunþrek?
Morgunþrek er hreyfing fyrir konur sem vilja byggja upp styrk, kraft og aukna orku í daglegu lífi. Hentar konum á öllum getustigum sem vilja læra hvað virkar fyrir sinn líkama og æfa í hvetjandi og stuðningsríku samfélagi.
Hvað segja námskeiðsþátttakendur um Morgunþrek?
"Stína alltaf hvetjandi og er "ein af hópnum". Fjölbreyttar æfingar, mikil hvatning, skemmtileg og traust. Frábærir hvatninga- og upplýsingapóstar m. tillögum að æfingum/mataræði sem styður við árangur."
-Ánægður námskeiðsþátttakandi
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku
- Boditrax – aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Lokaður facebook hópur
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum
ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.