Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Morgunþrek 3x í viku

5. janúar
8 vikur
43.900 kr. 5.488 kr. á viku
85.900 kr. 10.738 kr. á viku
Netgíró

Viltu finna meiri styrk, kraft og orku í daglegu lífi? ✨
Morgunþrek er fyrir konur sem vilja þjálfa á markvissan og hvetjandi hátt, með áherslu á þungan styrk, stutta ákefð og endurheimt sem skilar árangri. Fjölbreyttar æfingar og tímar í heitum sal miða að því að þú styrkist, liðkist og upplifir betri vellíðan á þínum forsendum.

Af hverju Morgunþrek?
Þú lærir hvað hentar þínum líkama og aðstæðum á meðan þú nýtur stuðnings öflugs hóps. Lögð er áhersla á þungan styrk, stutta og markvissa ákefð, góða endurheimt og næringu sem styður þjálfunina. Tímarnir eru fjölbreyttir — lotuþjálfun, lyftingar, stöðvar og hjól — og einu sinni í viku er unnið með styrk og liðleika í 30–32° innrauðum hita. Markmiðið er að hjálpa þér að finna meiri kraft, betri líðan og sterkara sjálfstraust — á þínum forsendum.

Fyrir hvern er Morgunþrek?
Morgunþrek er hreyfing fyrir konur sem vilja byggja upp styrk, kraft og aukna orku í daglegu lífi. Hentar konum á öllum getustigum sem vilja læra hvað virkar fyrir sinn líkama og æfa í hvetjandi og stuðningsríku samfélagi. 

Hvað segja námskeiðsþátttakendur um Morgunþrek?
"Hef verið á þessu námskeiði lengi, er hætt að telja árin. Ég man ekki eftir að hafa verið í sama tíma tvisvar. Stína er snillingur í að gera tímana skemmtilega - oft erfiða en alltaf eins og hver og einn getur. Ég hef farið í gegnum allskonar verki eða meiðsli og komið mér gegnum það með vökulu auga Stínu. Ég er stolt Stínu skvísa"

-Ánægður námskeiðsþátttakandi


Innifalið:

ATH! Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað. Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.

MÞ1

þriðjudagur
kl. 06:10-07:00
Salur 2
fimmtudagur
kl. 06:10-07:00
Salur 4+5
föstudagur
kl. 06:10-07:00
Salur 1
Tímabil : 6 janúar til 27 febrúar
Námskeið er hafið.

MÞ2

mánudagur
kl. 07:15-08:05
Salur 2
miðvikudagur
kl. 07:15-08:05
Salur 1
föstudagur
kl. 07:15-08:05
Salur 4+5
Tímabil : 5 janúar til 27 febrúar
Námskeið er hafið.

MyZone Switch

24.990 kr.

Hreyfing - Vatnsflaska

Frá 3.490 kr.

10 skipta skotakort

3.900 kr. 3.510 kr. -10%