Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Tímatafla

Best of Beauty

Til baka í vefverslun

Árleg verðlaun bandaríska tímaritsins Allure "Best of Beauty" eru ein þau virtustu í snyrtivöruheiminum. Þar velur ritstjórn tímaritsins, ásamt sérvalinni dómnefnd, þær snyrtivörur sem þeim finnst skara fram úr í sínum flokki. Við erum afar stolt af því að tvær vörur Blue Lagoon Skincare hafi hlotið þessa viðurkenningu, Mineral Mask og BL+ Eye Serum.

Prófaðu þessar tvær verðlaunavörur saman í einstöku gjafasetti. Settið inniheldur: BL+ eye serum (5ml), Mineral Mask (75 ml), Blue Lagoon snyrtitaska og Blue Lagoon maskalykil (sem hjálpar þér að ná öllu úr áltúpunum okkar).

22.700 kr. 13.900 kr. -39%
Best of Beauty
Best of Beauty

Ítarlegri upplýsingar um vöru

Settið inniheldur

BL+ EYE SERUM
Augnserum sem veitir öflugan raka, vinnu á fínum línum og dregur úr einkennum þreytu og þrota á viðkvæmu augnsvæði.

MINERAL MASK
Rakagefandi andlitsmaski sem inniheldur lífvirkan og steinefnaríkan jarðsjó Bláa Lónsins. Léttur gelmaski veitir húðinni öfluga rakagjöf sem gerir húðina mýkri og ljómandi.

BLUE LAGOON COSMETICS BAG
Falleg snyrtitaska sem er kjörin í ferðalagið, í ræktina eða til notkunar dagsdaglega.

TUBE/MASK SQUEEZER KEY
Lykillinn að minni sóun. Náðu hverjum dropa úr áltúpunum okkar.

 

NOTKUN

  • Setjið kælandi stálrúlluna á BL+ Eye Serum undir miðja augabrún og dragið hana í hálfhring; út að ytri augnkrók og áfram undir augað. Notið BL+ Eye Serum yfir daginn til að fríska upp á þreytt augnsvæðið eða draga úr þrota.

  • Berið Mineral Mask á hreina húð. Leyfið honum að vera á í 10-20 mínútur eða yfir nótt.