Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Tímatafla

Snyrtifræðingur - spennandi tækifæri

Viltu koma í hóp öflugra starfsmanna Hreyfing spa og starfa í umhverfi sem er metnaðarfullt, árangursdrifið og þar sem jákvæður andi er allsráðandi?
 
Við leitum að snyrtifræðingi sem smellpassar í okkar hóp, hefur metnað til að vinna af samviskusemi og fagmennsku og þyrstir stöðugt í nýjustu þekkingu í faginu og vill taka þátt í að byggja upp og þróa starfsemi snyrtistofunnar. Viðkomandi þarf að hafa góða reynslu og búa yfir ríkri þjónustulund.


Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá, mynd og meðmælendum til: andrea@hreyfing.is   

Hreyfing er lifandi og skemmtilegur vinnustaður sem leggur áherslu á að ráða til sín öflugt fólk í öll störf fyrirtækisins. Gildin okkar eru fagleg, hrein og notaleg.

Fagleg stendur fyrir það að við höfum metnað til að veita þjónustu af gæðum sem ekki á sér hliðstæðu hér á landi. Við hvetjum hvert annað til að viðhalda yfirburðaþekkingu á okkar sviði til eflingar hópsins og hagsbóta fyrir viðskiptavini.

Hrein þýðir að við leggjum kapp á snyrtimennsku í öllu okkar starfi og það sést á húsnæði okkar og aðstöðu en jafnframt að við erum hrein og bein í framkomu við hvert annað og við viðskiptavini.

Notaleg
dvöl í okkar stöð er okkur kappsmál og með persónulegu viðmóti, virðingu og hlýju í samskiptum náum við að búa til umhverfi sem viðskiptavinir kunna að meta og vinnustað þar sem besta fagfólkið vill starfa.