Heilsuaðild - æfðu með þjálfara
Heilsan er það mikilvægasta sem við eigum, taktu hana föstum tökum strax í dag með aðstoð þjálfara. Þú færð aðgang að fjölbreyttri hópþjálfunardagskrá í tækjasal, sérstökum SkillX tímum í glænýjum tækjasal, ýtarlegar líkamsástandsmælingar, sérhæfða æfingaáætlun, aðgang að þjálfara í sal, forskráningu í alla hóptíma og sérstöku þjálfunar appi auk fjölda annarra fríðinda.
Í Heilsuaðild hefur þú aðgang að Hreyfing spa, færð slopp og handklæði. Þar er notalegt slökunarrými, hengirólur, innrauð sauna og heitur pottur. Úti á veröndinni eru heitir pottar, kaldur pottur, sauna og blautgufa.
Hreyfing spa - einstök spa upplifun
Komdu til okkar og slakaðu á í notalegu umhverfi í nýju spa slökunarrými með innrauðri saunu, hengirólum og heitum potti.
Finndu hvernig skilningarvitin vakna. Endurnærðu líkama og sál í eimböðum, gufum, köldum og heitum pottum. Upplifðu einstakar heimsklassa snyrti-, nudd- og spameðferðir.
Kaupa kort
Taktu heilsuna föstum tökum og komdu í Hreyfingu.
Ef þú hefur ekki komið til okkar áður eða þarft aðstoð við að koma þér af stað getur þú bókað frían tíma með ráðgjafa hér!
Námskeið
SkillX - Tími til að taka á því
Fjölbreytt þjálfun með ýmsum skemmtilegum áskorunum í glænýjum SkillX sal. SkillX æfingarnar samanstanda af kraftlyftingum, ólympískum lyftingum, þol og úthaldsæfingum ásamt liðleikaþjálfun.
SkillX tímarnir eru fyrir Heilsuaðild og þá sem bæta SkillX aðgangi við aðild sína.
![Gjafakort Hreyfingar](/media/aamdr1m5/gjafakort.png?width=595&format=webp&quality=100)
Gjafakort Hreyfingar
Hægt er að fá gjafakort að ákveðinni upphæð, fyrir ákveðna þjónustu eða einfaldlega af þeirri samsetningu sem hentar best.
Sá sem gjöfina fær getur nýtt gjafakortið í dásamlega spaupplifun eða í heilsurækt hjá Hreyfingu.