NÝTT! SkillX
TÍMI TIL AÐ TAKA Á ÞVÍ!
Fjölbreytt þjálfun með ýmsum skemmtilegum áskorunum. SkillX æfingarnar samanstanda af kraftlyftingum, ólympískum lyftingum, þol og úthaldsæfingum ásamt liðleikaþjálfun.
SkillX tímarnir eru hannaðir fyrir breiðan hóp þátttakenda. Þjálfari skalar æfingar upp eða niður eftir þörfum hvers og eins þannig að hámarks árangur náist. Byrjendur og lengra komnir geta auðveldlega verið saman í tíma.
SkillX tímarnir henta öllum þeim sem eru tilbúnir að taka vel á og hafa gaman í kraftmikilli þjálfun og vilja bæta styrk og form.
SkillX tímarnir eru innifaldir í Bestu aðild og einnig er hægt að bæta SkillX við aðild sína!
ATH! SkillX áskrift ein og sér veitir ekki aðgang að Hreyfingu.
Innifalið í Bestu aðild:
- NÝTT! SkillX tímar
- Forskráning í alla hóptíma
- Aðgangur að heilsurækt, öllum opnum hóptímum og útispa með heitum pottum og gufuböðum.
- Aðgangur að spa, sloppur og handklæði
- Baðhandklæði í hverri heimsókn
- Aðgangur að þjálfara
- Sérsniðin æfingaáætlun í Hreyfingar appinu og markmiðasetning
- Sérstök hóptímadagskrá í tækjasal - aðeins fyrir Bestu aðild
- Boditrax líkamsástandsmælingar
- 15% afsláttur af snyrti-, nudd- og spameðferðum
(Gildir ekki af gjafabréfum) - 15% afsláttur af Blue Lagoon vörum
- Kortið má leggja inn 1x ári
- Vetrarkort Bláa lónsins: Kortið veitir aðgang að Bláa Lóninu frá 1. október til 15. maí. Kortið gildir einungis fyrir þann einstakling sem skráður er á kortið, og auk þess tvö börn korthafa, 2-13 ára, í fylgd með honum.

Einfalt að uppfæra í Bestu aðild, þú einfaldlega skráir þig í Bestu aðild og þá lokast sú aðild sem þú ert með í dag sjálfkrafa (ef binditími leyfir) og við leiðréttum æfingagjöldin.