Hæfileikaleit Hreyfingar
11. júní 2025 - kl. 18:30
Viltu verða Skillrun þjálfari í Hreyfingu? Hefur þú brennandi áhuga á hlaupum, styrktarþjálfun og heilsurækt?
Við leitum að hæfileikaríku fólki til að taka þátt í þjálfun til að verða leiðbeinandi í Skillrun hóptímum. Ef þú hefur brennandi áhuga á líkamsrækt, ert áhugamanneskja um þjálfun, hefur reynslu af hlaupum, lyftingum eða hefur stundað hóptíma af krafti þá er þetta tækifæri fyrir þig!
Áhugi, lífsgleði, orka og hæfni til að leiða hóp og hvetja aðra til dáða er allt sem þarf, annað lærir þú hjá okkur.
Allir eldri en 18 ára með brennandi áhuga velkomnir að spreyta sig, hvort sem þú hefur þjálfað áður eða ekki.
Menntun á sviði þjálfunar er kostur en ekki skilyrði.
Þú gætir verið valin/n úr hópnum, misstu ekki af þessu einstaka tækifæri til að byggja upp starfsvettvang sem tengist þínu áhugamáli.
Þegar þú hefur skráð þig færðu sendar upplýsingar um næstu skref og allar nánari upplýsingar.
Gríptu tækifærið, vertu með og skráðu þig hér: